Spennandi keppni í skæri-blað-steinn

 

Á föstudaginn fór fram hin árlega skæri-blað-steinn keppni skólans. Af því tilefni komu allir saman í íþróttamiðstöðinni þar sem spenna og gleðin voru allsráðandi.

Í skólanum var jafnframt blár litadagur til stuðnings íslenska handboltalandsliðsins. Af því tilefni var haldin söngstund sem skapaði skemmtilega og samhenta stemningu.

Skæri-blað-steinn keppnin er orðin fastur og vinsæll liður í skólastarfinu. Allir nemendur tóku þátt í undankeppni sem endaði með úrslitaviðureign þar sem Hugi Dagur úr 5. bekk og Markús Alex úr 6. bekk mættust. Eftir spennandi keppni stóð Markús Alex uppi sem sigurvegari að þessu sinni.Meðfylgjandi mynd er af þeim Huga Degi og Markúsi Alex, sem tekin var rétt fyrir úrslitaviðureignina.