Stóra upplestarkeppnin

Þriðjudaginn 12. maí fór fram lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2026 hjá grunnskólunum í Þorlákhöfn og Hveragerði. Þetta er orðið fastur liður í samstarfi skólanna og í sjötta sinn sem hátíðin er haldin sameiginlega.

Stóra upplestrarkeppnin hefur um árabil skipað mikilvægan sess í íslensku skólastarfi og markmið hennar er að efla vandaðan upplestur, framburð og framkomu nemenda. Verkefnið hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, þegar sérstök áhersla er lögð á upplestur og tjáningu í skólastarfinu. Í framhaldinu fara fram undankeppnir innan skólanna þar sem fulltrúar eru valdir til þátttöku í lokakeppninni.

Keppendur sýndu glæsilegan árangur í ár og var greinilegt að þau höfðu lagt mikla alúð í undirbúning sinn. Áheyrendur nutu fjölbreyttra og vel fluttra texta og stemningin var og hátíðleg.

Úrslit keppninnar urðu þau að Markús Alex Jónsson bar sigur úr býtum, Þorvarður Ragnar Þ. Sigrúnarson hafnaði í öðru sæti og Nína Sigrún Arnarsdóttir í því þriðja. Öll eru þau nemendur við Grunnskólann í Þorlákshöfn.

Allir þátttakendur stóðu sig með mikilli prýði. Að keppni lokinni áttu nemendur úr báðum skólum góða og skemmtilega stund saman þar sem gleði og samvera voru í fyrirrúmi.

Á meðfylgjandi mynd eru sigurvegarar keppninnar ásamt Aðalheiði Önnur Erlingsdóttur og Jóhönnu Kr. Aðalsteinsdóttur umsjónarkennurum bekkjarins og Ólínu Þorleifsdóttur skólastjóra.