- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar/forráðamenn
- Stoðþjónusta
- Myndir
- Matseðill
- Gagnlegt efni
Stóra upplestrarkeppnin er árlegt verkefni fyrir nemendur í 7. bekk sem miðar að því að efla vandaðan upplestur og sjálfsöryggi í framkomu. Í gegnum verkefnið fá allir nemendur í árganginum markvissa kennslu í framsögn, túlkun og framkomu.
Lokahátíð Grunnskólans í Þorlákshöfn og Grunnskólans í Hveragerði fór fram í dag í Hveragerði. Skólarnir skiptast á að halda þessa hátíð ár hvert og var andrúmsloftið bæði hátíðlegt og hlýlegt. Á lokahátíðinni lásu alls tólf nemendur valin ljóð og sögubrot af mikilli innlifun og alúð.
Allir lesarar stóðu sig afskaplega vel og voru aðstandendur og kennarar stoltir af frammistöðu þeirra. Hátíðinni var einnig gert hátt undir höfði með tónlistaratriðum frá báðum skólum sem prýddu dagskrána.
Þrír nemendur hlutu sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi lestur. Í þriðja sæti varð Jana Marín Finnsdóttir úr Grunnskólanum í Þorlákshöfn, í öðru sæti Maren Sif Vilhjálmsdóttir, Grunnskólanum í Þorlákshöfn og að lokum hlaut Lilja Snædís Marteinsdóttir, Grunnskólanum í Þorlákshöfn fyrsta sætið.
Að lokinni dagskrá bauð Grunnskólinn í Hveragerði öllum krökkunum í pylsupartý, leiki og samveru.