Stuðningsfulltrúi óskast til starfa

Grunnskólinn í Þorlákshöfn óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 75% starf frá kl. 8:00 alla daga en mismunandi er hvenær vinnu lýkur eftir vikudögum.

Starfið felur í sér stuðning og gæslu við nemanda/nemendur

í skóla og frístundastarfi.

Lipurð og góð færni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg. Reynsla af vinnu með börnum æskileg.

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.

Laun eru skv. kjarasamningi  FOSS

 

Umsóknarfrestur er til 2. janúar 2018.  Viðkomandi þarf að geta hafið störf 22. janúar 2018.

Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skal senda í tölvupósti á  gudrun@olfus.is og olina@olfus.is

Öllum umsóknum verður svarað.

Upplýsingar um skólastarfið eru á heimasíðu skólans:  http://grunnskolinníþorlákshöfn.is

Allar nánari upplýsingar veita Guðrún skólastjóri í síma 848-9001 og Ólína aðstoðarskólastjóri í síma 861-1732.

Skólastjórnendur