- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar/forráðamenn
- Stoðþjónusta
- Myndir
- Matseðill
- Gagnlegt efni
Á skólaslitum Grunnskólans í Þorlákshöfn í dag var afhentur styrkur að upphæð 250.000 krónur til Umhyggju, félags langveikra barna.
Styrkurinn er ágóði af Þemadögum Þorpsins sem haldnir voru í skólanum fyrr á þessu skólaári. Nemendur lögðu þar sitt af mörkum með fjölbreyttum hætti og söfnuðu fé til góðs málefnis. Það var nemendaráð skólans sem tók ákvörðun um að styrkja Umhyggju að þessu sinni.
Sóldís Sara, formaður nemendaráðs, afhenti Árnýju Ingvarsdóttur, framkvæmdastjóra Umhyggju, ávísunina við hátíðlega athöfn á skólaslitunum.
Umhyggja vinnur mikilvægt starf í þágu langveikra barna, barna með umfangsmiklar stuðningsþarfir og fjölskyldna þeirra. Við hjá Grunnskólanum í Þorlákshöfn erum afar stolt af frumkvæði nemenda og þeirri samfélagsábyrgð sem þau sýna með því að láta gott af sér leiða. Við þökkum öllum sem komu að Þemadögum Þorpsins og gerðu þessa veglegu styrkveitingu mögulega.
