Sumarfjör námskeið fyrir börn í 1. - 4. bekk - skráning

Námskeiðshaldari: Sveitarfélagið Ölfus
 
Verkefnastjóri: Róbert Páll Chiglinsky
 
Aldur: Börn í 1-4 bekk.
 

Lögð er áhersla á leik, list og náttúru. Börnin fá tækifæri til að njóta náttúrunnar í kringum okkur á ýmsan hátt, skapa list og efla ýmsa hæfni bæði í skipulögðum leik og frjálsum. Börnin munu hafa aðsetur í grunnskólanum þar sem frístund hefur verið.

 

Verðskrá:

 

Boðið er uppá heilan dag eða hálfan dag, annaðhvort fyrir eða eftir hádegi.

Kr. 8880,- frá kl. 08:00 til 16:00.

Kr. 4700,- frá kl. 08:00 til 12:00 eða 12:00 til 16:00.

Systkinaafsláttur: 2. barn 30%, 3. barn 50%

Athugið að börnin þurfa að koma með nesti yfir daginn.

Tímabil:

Námskeið 1: 7. júní - 10. júní (4 dagar, 6. júní er frídagur) skráning hér

Námskeið 2: 13. júní - 16. júní (4 dagar, 17. júní er frídagur) skráning hér

Námskeið 3: . 20. júní – 24. júní (5 dagar) skráning hér

Námskeið 4: .27. júní – 1. júlí (5 dagar) skráning hér

ATH! Skráning fyrir börn í Frístund fyrir skólaárið 2022-2023 verður send í tölvupósti. Boðið verður upp á Frístund fyrir þá sem þurfa gæslu viku fyrir skólasetningu eða vikuna 15. - 19. ágúst.