- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar/forráðamenn
- Stoðþjónusta
- Myndir
- Matseðill
- Gagnlegt efni
Nemendur í 1. -7. bekk tóku þátt í Svakalegu lestrarkeppninni sem haldi var á landsvísu frá 15.sept - 6. október.
Það eru höfundarnir Blær Guðmundsdóttir og Eva Rún Þorgeirsdóttir sem standa fyrir svakalegu lestrarkeppninni en hún er unnin í samstarfi við List fyrir alla, Reykjavíkurborg og Læsi.
Þær hafa hlotið ýmsar viðurkenningar og verðlaun fyrir verk sín og nýverið hlutu þær Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2026 fyrir handritið að glænýrri barnabók sem ber heitið Bestu vinir.
Í lok keppninnar sendu skólar inn heildarfjölda mínútna sem nemendur í 1. - 7. bekk höfðu lesið. Mínútufjölda er deilt upp með heildarfjölda nemenda í 1. - 7. bekk til að minni skólar eigi jafn mikinn möguleika á að vinna og þeir stóru. Sá skóli vinnur sem hefur lesið í flestar mínútur að meðaltali.
Eftir hverja viku fékk sá bekkur sem las flestar mínútur íspinnaveislu. Keppnin var hörð og mikil spenna hjá nemendum enda ekki á hverjum degi sem boðið er upp á ís í skólanum.
Fyrstu vikuna fékk 4. bekkur verðlaunin, í annarri viku var það 1. bekkur og loka vikuna 3. bekkur. Annar bekkur fékk að lokum viðurkenningu fyrir mestu bætingu milli vikna. Þannig vann allt yngsta stigið sér inn íspinna.
Nemendur okkar stóðu sig vel og lásu 149.370 mínútur á tímabilinu eða 747 mínútur hver nemandi að meðaltali.
Alls voru 108 skólar sem tóku þátt og voru 30 efstu sætin tilkynnt í beinu streymi fimmtudaginn 15. október kl. 10.30. Gaman er að segja frá því að við náðum þeim frábæra árangri að vera númer 20 með 747 mínútur að meðaltali á hvern nemanda.
Risa pizzaveislu var slegið upp fyrir alla nemendur skólans að þeirra ósk föstudaginn 16.október í viðurkenningarskyni fyrir frábæran árangur!
Á keppnistímabilinu lásu nemendur að meðaltali í 12.4 klst á nemanda eða 4,15 klst á viku. Hefðbundinn 15.mín heimalestur á dag gerir 1.75 klst á viku. Það má því með sanni segja að nemendur hafi heldur betur aukið yndislesturinn. Nú er um að gera að halda áfram að skapa gæðastundir með bók í hönd.