- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar/forráðamenn
- Stoðþjónusta
- Myndir
- Matseðill
- Gagnlegt efni
Föstudaginn 29. maí frá kl. 10–12 verður Þorpið opið í Grunnskólanum í Þorlákshöfn og eru allir hjartanlega velkomnir.
Í þessu verkefni breytist skólinn í líflegt samfélag þar sem nemendur skapa, selja og þjónusta með eigin gjaldmiðli sem kallast Þollarar. Gestir geta meðal annars heimsótt kaffihús og bakarí, skoðað handunnar vörur og nytjamarkað, fengið andlitsmálun og fleira skemmtilegt.
Hægt verður að skipta íslenskum krónum í Þollara á staðnum með posa.
Við hlökkum til að taka á móti fjölskyldum og öðrum gestum í Þorpinu.
