Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar

Í dag fór fram undankeppni fyrir Stóru upplestrarkeppnina í skólanum sem nemendur í 7. bekk taka þátt í ár hvert. Að venju var keppnin hátíðleg og stóðu nemendur sig afar vel.

Alls komust sex nemendur áfram í lokakeppnina sem fram fer í maí, þar sem þeir munu keppa fyrir hönd skólans ásamt nemendum í Grunnskólanum í Hveragerði.

Þeir nemendur sem tryggðu sér sæti í lokakeppninni eru:

  • Helga Laufey Guðbergsdóttir
  • Kristófer Vopni Óttarsson
  • Markús Alex Jónsson
  • Nína Sigrún Arnarsdóttir
  • Patrekur Sigfússon
  • Þorvarður Ragnar Þ. Sigrúnarson

Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn og hlökkum til að fylgjast með þeim í lokakeppninni. Jafnframt erum við afar stolt af öllum þeim nemendum sem tóku þátt.