Vel heppnuð árshátíð miðstigs

Árshátíð miðstigs var haldin í fyrsta sinn í skólanum fimmtudaginn 7. maí og tókst afar vel. Mikil gleði og stemning ríkti meðal nemenda sem skemmtu sér saman yfir fjölbreyttri dagskrá.

Það var nemendaráð miðstigs, sem sett var á laggirnar í haust, sem skipulagði árshátíðina. Ráðið hefur staðið fyrir ýmsum skemmtilegum viðburðum í vetur og hefur framtakið mælst vel fyrir meðal nemenda.

Meðal dagskrárliða var hæfileikakeppnin Miðstig Got Talent þar sem atriði frá öllum bekkjum voru sýnd. Sigurvegari keppninnar var Elvar Freyr Vilhjálmsson sem flutti lagið Mr. Brightside af mikilli innlifun.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Elvar taka við verðlaunum fyrir frammistöðuna.