Vinna gegn einelti

Mánudagurinn 8. nóvember var tileinkaður baráttunni gegn einelti. Af því tilefni komu vinabekkir saman og útbjuggu kort með vinakveðju til allra íbúa í Þorlákshöfn.

Þetta var skemmtileg stund þar sem yngri og eldri nemendur komu saman og unnu sameiginlega að kortunum. Nemendurnir fara síðan saman og bera kortin út í húsin í bænum.