- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar/forráðamenn
- Stoðþjónusta
- Myndir
- Matseðill
- Gagnlegt efni
Við þurftum að grípa til veðurráðstafana í gær og færa árlegu vorhátíðina okkar inn í íþróttahús. Það kom þó ekki að sök því allir skemmtu sér konunglega og tóku þátt í alls konar leikjum eða fóru í sund. Hátíðinni lauk svo með pylsupartýi í sal skólans þar sem Júlí Heiðar og Dísa sáu um að halda stemningunni gangandi í boði foreldrafélagsins. Við viljum færa foreldrafélaginu okkar, Júlí Heiðari og Dísu innilegar þakkir fyrir þessa frábæru skemmtun.