Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarráð Ölfuss - 462

Haldinn í fjarfundi,
19.03.2026 og hófst hann kl. 12:15
Fundinn sátu: Grétar Ingi Erlendsson formaður,
Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir aðalmaður,
Hrönn Guðmundsdóttir aðalmaður,
Berglind Friðriksdóttir áheyrnarfulltrúi,
Elliði Vignisson bæjarstjóri,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sandra Dís Hafþórsdóttir, sviðsstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2603014 - Beiðni um viðauka - Selvogsbraut 1
Umsjónamaður fasteigna óskar eftir viðauka að fjárhæð 2,2 milljónir til að skipta flísum á baðgólfum út fyrir dúk með hálkuvörn í 2 íbúðum og mála þær þar sem þær voru að losna.

Bæjarráð samþykkir beiðni um viðauka.

Samþykkt samhljóða.
2. 2603015 - Beiðni um viðauka - Grunnskólinn
Sviðsstjóri óskar eftir viðauka til að klára eftirstöðvar á breytingu tölvustofu í fundarherbergi, rými fyrir sérkennslu og hjúkrunarfræðing. Um er að ræða 3,1 milljón í glervegg ásamt innihurðum í sama stíl og fyrir er í skólanum.

Bæjarráð samþykkir beiðni um viðauka.

Samþykkt samhljóða.
3. 2603029 - Beiðni um viðauka vegna aukaverk í Hraunheimum
Sviðsstjóri óskar eftir viðauka vegna lokauppgjörs á aukaverkum sem lágu ekki fyrir í fjárhagsáætlunargerð síðasta árs. Um er að ræða 4.985.000.- sjá meðfylgjandi samantekt.

Bæjarráð samþykkir beiðni um viðauka.

Samþykkt samhljóða.
4. 2603026 - Beiðni um viðauka vegna leikvalla
Umhverfisstjóri óskar eftir viðauka að fjárhæð kr. 1,4 milljónir vegna kaupa og uppsetningar á hliðum við leikvöllinn í Pálsbúð. Verkið var á áætlun síðasta árs en vegna tafa var það ekki klárað fyrr en í febrúar.

Bæjarráð samþykkir beiðni um viðauka.

Samþykkt samhljóða.
5. 2603027 - Viðauki við samkomulag um fasteignaþróun við Óseyrarbraut
Fyrir bæjarráði lá beiðni um viðauka við samkomulag um fasteignaþróun við Óseyrarbraut sem var samþykktur samhljóða á 414. fundi bæjarráðs. Með framsalinu eru réttindi og skyldur upphaflega samkomulagsins færð beint til þeirra aðila sem stóðu að samkomulaginu í stað þess að slíkt liggi hjá félagi í sameiginlegri eigu þeirra. Réttindi og skyldur haldast að öðru leyti óbreytt.
Bæjarráð samþykkir viðaukann enda hefur hann ekki áhrif á réttindi og skyldur sveitarfélagsins. Bæjarráð vill nota tækifærið og minna sérstaklega á mikilvægi þess að undirbúningi þess er lýtur að byggingu hjúkrunarheimilis verð flýtt svo mikið sem mögulegt er.

Samþykkt samhljóða.
6. 2603028 - Verkefnið Hjartans þakkir fyrir bókasafnið
Lagt var fram erindi dags. 15. mars 2026, þar sem upplýst er um umsókn um styrk til Rannís í tengslum við eflingu Bóksafns Ölfuss. Enn fremur er óskað er eftir samstarfi við sveitarfélagið Ölfus um tilraunaverkefni til eins árs sem felur m.a. í sér lengri opnunartíma bæjarbókasafnsins.
Bæjarráð lýsir yfir fullum vilja til samstarfs við bréfritara hvað varðar styrkumsókn til Rannís og fagnar framkomnum hugmyndum um eflingu bókasafnsins og aukna þjónustu við íbúa, sérstaklega með tilliti til barna og fjölskyldna þeirra.

Bæjarráð bendir á að samkvæmt lögum og reglum um ráðningar hjá sveitarfélaginu skulu öll störf vera auglýst opinberlega. Ekki er því unnt að verða við erindinu að því leyti sem það felur í sér beina ráðningu án auglýsingar.

Bæjarráð tekur undir með bréfrita um mikilvægi þess að miða opnunartíma bóksafns að þörfum notenda. Bæjarráð felur starfsmönnum að móta tillögur til ráðsins um hvernig haga megi opnunartíma og vinnutíma starfsmanna þannig að hann slíkt sé í samræmi við þarfir notenda. Tillögurnar verði svo lagðar fyrir ráðið svo fljótt sem verða má.

Samþykkt samhljóða.
7. 2304043 - Fundartími bæjarráðs
Þar sem næsta reglulega fund bæjarráðs ber upp á skírdag er lagt til að fundurinn verði miðvikudaginn 1.apríl.
Samþykkt samhljóða.
8. 1704002 - Lagafrumvörp Beiðni Alþingis um umsögn.
Umsögn um mál 499 - Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.

Lagt fram.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:40 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?