Fjölskyldu og fræðslusvið

Yfirlitsmynd ÞorlákshöfnFjölskyldu og fræðslusvið fer með málefni félagsþjónustu, barnaverndar, grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla, lýðheilsu- og íþróttamála og frístundamál barna og ungmenna.

Sviðsstjóri fjölskyldu og fræðslusviðs hefur yfirumsjón með faglegu starfi sviðsins, ásamt yfirmönnum á sviðinu sem eru deildarstjóri velferðarþjónustu, íþrótta og tómstundafulltrúi, skólastjórnendur, forstöðumaður lífsgæða aldraðra og íbúðakjarna fatlaðra, deildarstjóri VISS vinnu- og hæfingastöð og matráður skólaeldhúss.

Sviðsstjóri fjölskyldu og fræðslusviðs er yfirmaður sviðsins og hefur með höndum stefnumótun í þeim málaflokkum sem heyra undir sviðið, stýrir rekstri þeirra með áherslu á forystu í málefnum fjölskyldunnar á víðtækum grunni. Hann hefur frumkvæðishlutverk og ábyrgð á stefnumörkun, þekkingaröflun, þekkingarmiðlun og greiningu upplýsinga varðandi viðfangsefni fjölskyldu og fræðslusviðs. Sviðstjóri mótar starfsemi sviðsins og framtíðarsýn þess í samræmi við áherslur bæjaryfirvalda.

Hlutverk fjölskyldu og fræðslusviðs er að veita þjónustu sem snýr að uppeldi, menntun, tómstundum og forvörnum. Þjónusta í velferðarmálum er veitt samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, barnavernd og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Áherslur fjölskyldu- og fræðslusviðs er að leitast við að veita öfluga, samþætta og þverfaglega þjónustu til að tryggja farsæld allra barna og hamingju íbúa í Sveitarfélaginu Ölfusi. 

Stjórnendur á fjölskyldu og fræðslusviði:

 

Sviðsstjóri fjölskyldu og fræðslusviðs:
Jóhanna M. Hjartardóttir
jmh@olfus.is

Deildarstjóri velferðarþjónustu:
Eyrún Hafþórsdóttir,
eyrun@olfus.is

Íþrótta og tómstundafulltrúi:

Ragnar M. Sigurðsson 
ragnar@olfus.is 


Skólastjóri Grunnskólans í Þorlákshöfn:

Ólína Þorleifsdóttir
olina@olfus.is 


Leikskólastjóri Leikskólans Bergheima:

Helena Helgadóttir
helenah@hjalli.is 


Forstöðumaður lífsgæðaseturs aldraðra og íbúðakjarna fatlaðra:
Kolbrún Una Jóhannsdóttir
kolbrun@olfus.is 

Deildarstjóri VISS vinnu- og hæfingastöð:
Anna Sigríður Karlsdóttir
anna.karlsdottir@olfus.is 

Matráður skólaeldhúss:
Hrönn Guðmundsdóttir
hronn.gudmundsdottir@olfus.is 

Fjölskyldu og fræðslunefnd fer með málefni sviðsins í umboði bæjarstjórnar.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?