Frístundaheimilið
Egilsbraut 35
815 Þorlákshöfn
Sími 699-6090
Netfang: fristund@olfus.is
Frístundaheimilið býður uppá fjölbreytt tómstundarstarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur. Starfið einkennist jafnt af skipulögðum sem og frjálsum leik. Innra starf frístundheimilisins svo sem dagskrá, viðfangsefni og samstarf við utanaðkomandi aðila fer eftir aðstæðum hverju sinni.
Þjónusta við börn með sérþarfir eru skipulögð í frístundaheimilinu í samvinnu við foreldra, skóla og fagðila er tengjast börnunum.
Sé þess óskað munu starfsmenn frístundaheimilis sjá um að koma börnum í frjálst starf utan skóla (s.s. íþróttaæfingar, tónlistarskóla o.fl.). Tilkynna þarf starfsmönnum þetta sérstaklega og skrá á umsóknareyðublað.
Reglur um þjónustu frístundar Sveitarfélagsins Ölfuss
Opnunartími
Frístundaheimilið er opið eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur til kl. 16:30 alla virka daga.
- Þá daga sem frístund er opið frá kl. 8 er opið til kl. 16.
- Lokað er á einstaka starfsdögum.
- Frístundaheimilið er lokað í vetrarfríum grunnskólans og á haustþingi.
Innritun og þjónusta
Haustið 2024 tók í gildi nýtt skráningakerfi og sækja foreldrar/forráðamenn um dvöl í Frístund frá 1. september 2024 hér.
Ef þjónustu er sagt upp skal það gert fyrir 15. hvers mánaðar og tekur uppsögnin gildi um næstu mánaðarmót. Allar breytingar á umsóknareyðublaði skal tilkynna til starfsmanna.
Frístundaheimilið er staðsett í Suðurvör í Grunnskólanum í Þorlákshöfn. Að öðru leyti er húsnæði skólans samnýtt í samráði við skólastjórnendur s.s. sérgreinastofur, hátíðarsalur og bíósalur.
Einnig er sá möguleiki fyrir hendi að starfsfólk frístundaheimilis nýti íþróttahús og félagsmiðstöð í samráði við starfsfólk á hvorum stað.
Gjaldskrá og dvalarþjónusta
Hér má finna gjaldskrá frístundaheimilisins. Breyting á vistunartíma tók gildi 1.sept. 2024 og er vistun frá lokum skóladags til kl. 16:30 á kr. 14.363
- Boðið er uppá nokkra vistunarmöguleika: til kl. 15:00, til kl. 16:00 og til kl. 16:30.
- Vistun fyrir heilan dag er frá lok skóladags frá kl. 13:00 til kl. 16:30. Full vistun er u.þ.b. 17,5 klukkustundir á viku.
- Hálfsdagsvistun er sveigjanleg. Þ.e. miðað er við allt að helming af opnunartíma heimilisins. Þetta getur átt við ef fólk vill fá vistun ákveðna daga í viku.
- Veittur er systkinaafsláttur. Hann er 30% með öðru barni og 50% afsláttur fyrir þriðja barn.
Systkinaafsláttur gildir eingöngu ef systkini eru í fullri vistun.
Fæði: Boðið er uppá síðdegishressingu. Gjald er samkvæmt gjaldskrá Sveitarfélagsins Ölfuss
Klæðnaður:
Börn verða að vera klædd eftir veðri, þ.e. í regnfötum þegar það á við o.s.frv. Gera má ráð fyrir að börn fari yfirleitt út að leika sér, bæði frjálst eða samkvæmt skipulagi.
Sund / íþróttir:
Frístundaheimilið hefur íþróttasal til afnota.
Nánari upplýsingar tölvupósti á soleyj@olfus.is