Yfir sumartímann starfrækir sveitarfélagið vinnuskóla fyrir unglinga. Markmið vinnuskólans er að bjóða upp á
hollt, uppbyggjandi og fjölbreytt sumarstarf þar sem unglingar fá tækifæri til að efla ábyrgð, samvinnu og vinnuvenjur.
Starf og fræðsla
Í vinnuskólanum er boðið upp á fjölbreytt verkefni á mismunandi vinnusvæðum.
Unglingarnir fá fræðslu um:
Skráning og væntingar
Með skráningu í vinnuskólann sýnir unglingur vilja til að taka þátt í starfi skólans. Honum ber að:
-
sinna þeim verkefnum sem honum eru falin
-
halda sig að verki án þess að stöðugt þurfi að minna á það
-
sýna jákvætt viðmót og virðingu gagnvart samstarfsfólki og verkefnum
Samvinna er við starfsfólk í "Sumarféló fyrir fötluð börn" er varðar stuðning fyrir fötluð börn á vinnuskólaaldri.
Reglur vinnuskóla Ölfuss