Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarstjórn Ölfuss - 341

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
27.02.2025 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir 1. varaforseti,
Grétar Ingi Erlendsson bæjarfulltrúi,
Erla Sif Markúsdóttir bæjarfulltrúi,
Guðlaug Einarsdóttir 1. varamaður,
Gunnsteinn R. Ómarsson 1. varamaður,
Vilhjálmur Baldur Guðmundsson bæjarfulltrúi,
Berglind Friðriksdóttir bæjarfulltrúi,
Elliði Vignisson bæjarstjóri,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sandra Dís Hafþórsdóttir, sviðsstjóri
Í upphafi fundar leitaði forseti eftir athugasemdum við fundarboð en engar bárust.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2501046 - Bolaölduvirkjun - Kynning á fundi
Forsvarsmenn Reykjavík Geothermal komu inn á fundinn og kynntu fyrirætlanir um hina nýju Bolaölduvirkjun fyrir bæjarstjórn. Gert er ráð fyrir 100 MW virkjun sem staðsett verður við fjallið eina.


Bæjarstjórn þakkar kynninguna.

Forsvarsmenn Reykjavík Geothermal yfirgáfu fundinn kl. 17:50.


2. 2409011 - Nýtingarhlutfall iðnaðar og athafnasvæða ASKBR
Lögð er fram breyting á aðalskipulagi Ölfuss er varðar skilmála um hámarks nýtingarhlutfall. Með breytingunni er gert ráð fyrir að almennt nýtingarhlutfall lóða sé á bilinu 0,5-0,8 en að heimilt sé að víkja frá því í deiliskipulagi ef viðeigandi forsendur eru fyrir hendi. Sveitarfélagið vill að tekið sé tillit til aðstæðna á hverjum stað fyrir sig og að uppbygging afmarkist af umfangi og eðli framkvæmda/starfsemi hverju sinni.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2501061 - Víkursandur uppskipting lóða óv. DSKbr.
Lögð er fram óveruleg deiliskipulagsbreyting fyrir iðnaðarsvæði á Víkursandi. Breytingin felur í sér uppskiptingu lóða, endurákvörðun staðfanga og stækkun byggingareita.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgrein 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2406023 - Útikennslustofa í Skrúðgarði
Lögð er fyrir nefndina minniháttar breyting á deiliskipulagi fyrir skrúðgarðinn þar sem búið er að gera svæði fyrir útikennslu.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulags og byggingarfulltrúum verði heimilað að samþykkja breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2402017 - Grímslækjarheiði - Hraunkvíar DSK
Lagt er fram deiliskipulag fyrir Ytri-Grímslæk og Hraunkvíar sem eru saman um 9,2 ha. að stærð. Til stendur að afmarka 14 íbúðalóðir í samræmi við aðalskipulag Ölfuss reit ÍB17.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
6. 2408036 - Stóragerði DSK
Endurkoma eftir athugasemdaferli
Gerðar voru athugasemdir við skipulagið sem skipulagshöfundur hefur nú brugðist við.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 2502021 - Staður - stækkun byggingarreits - Óv. DSKbr
Lögð er fram óveruleg breyting deiliskipulagsins Gljúfurárholt Land 10. Breytingin tekur til lóðarinnar Staður sem merkt er L4 (c á DSKbreytingu) á deiliskipulagsuppdrætti. Breytingin felur í sér að byggingarreitur L4 er stækkaður um 2 metra í átt að vegi og yrði því 32m á dýpt í stað 30m.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulags og byggingarfulltrúum verði heimilað að samþykkja breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
8. 2402082 - Stóragerði ASK
Endurkoma eftir athugasemdaferli
Gerðar voru athugasemdir við skipulagsbreytinguna sem skipulagshöfundur hefur nú brugðist við.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 3. mgr. 30. gr. og 2. málsgrein 32. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
9. 2502020 - Virkjunarsvæði í Hverahlíð DSKbr
Lögð er fram deiliskipulagsbreyting vegna virkjunarsvæðisins í Hverahlíð. Breytingin er í samræmi við breytingu á aðalskipulagi Ölfuss vegna jarðhitasvæða í Hverahlíð og Meitlum sem er á lokametrum skipulagsferlisins. Orkuveitan gerir ráð fyrir þeim orkukostum sem hafa verið skilgreindir í nýtingarflokki til að viðhalda virkjunum Orku náttúrunnar og eru þeir mikilvægir fyrir hitaveitu og rafmagnsframleiðslu. Fyrirhugað framkvæmdasvæði er við iðnaðarsvæðin I19 (Hverahlíðarvirkjun) og I20 (Gráuhnúkar).

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
10. 2502019 - Útvíkkun þéttbýlismarka Þorlákshafnar ASKbr
Lögð er fram aðalskipulagslýsing er fjallar um breytingu þéttbýlismarka Þorlákshafnar. Breytingin felur í sér að þéttbýlismörk eru stækkuð þannig að þau nái út fyrir iðnaðarsvæði á Víkursandi og þau fyrir sunnan Suðurstrandarveg.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa skipulagslýsinguna og ganga frá málinu í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
11. 2502018 - Hellisheiðarvirkjun - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna borunar vinnsluborholu við skiljustöð 2
ON sækir um framkvæmdarleyfi vegna borunar vinnsluborholu við skiljustöð 2 á Hellisheiði. Vinnsluborholan er í samræmi við núgildandi deiliskipulag á svæðinu innan reits I21 á Hellisheiði. Send var inn matsskyldufyrirspurn vegna framkvæmdarinnar árið 2021 og var niðurstaðan þar sú að framkvæmdin væri ekki umhverfismatsskyld.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
12. 2305039 - DSK Hótel og tengd starfsemi í Hafnarvík v Leirur í Þorlákshöfn - Golfvöllur
Endurauglýsing
Deiliskipulagið hefur áður verið samþykkt af skipulagsnefnd en þar sem gerð var aðalskipulagsbreyting þarf að auglýsa deiliskipulagið aftur.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
13. 2501053 - Hellisheiðarvirkjun 21. DSKbr
Lögð er fram óveruleg breyting á deiliskipulagi Hellisheiðarvirkjunnar. Þar sem ekki er tekið fram í almennum skilmálum að gert sé ráð fyrir verkstæðis- og lagerbyggingu innan lóðar Sleggju felst breyting á deiliskipulagi í því að bætt er við þeim skilmálum að heimilt er að hafa verkstæðis- og lagerbyggingu innan byggingarreits lóðarinnar.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulags og byggingarfulltrúum verði heimilað að samþykkja breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
14. 2411024 - Laxabraut 12 DSK
Endurkoma eftir athugasemdaferli
Skipulagið hefur lokið athugasemdaferli og bárust 4 umsagnir. Skipulagshöfundur hefur brugðist við athugasemdum og leggur fram uppfært deiliskipulag.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
15. 2411025 - Sögusteinn DSK
Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir Sögustein á Grímslækjarheiði og er stærð skipulagssvæðis um 4,5 ha. Með breytingunni eru byggingarskilmálar uppfærðir í samræmi við endurskoðað Aðalskipulag Ölfus. Lóðir breytast ekki en nýir byggingarreitir eru afmarkaðir innan Hlíðaráss og Sögusteins 1 og skilmálar uppfærðir.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
Fundargerðir til staðfestingar
16. 2501011F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 87.
Fundargerð 87.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 05.02.2025 til staðfestingar.

1. 2412035 - Jarðvarmavirkjun í Hverahlíð og Þrengslum - DSK. Til kynningar.
2. 2501046 - Bolaölduvirkjun - Kynning á fundi. Til kynningar.
3. 2412032 - Viljayfirlýsing - samstarf um uppbyggingu og rekstur athafnasvæðis Carbfix. Til kynningar.
4. 2501049 - Umsókn um aðstöðu í námu við gamla Þorlákshafnarveg. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2501053 - Hellisheiðarvirkjun 21. DSKbr. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
6. 2501060 - Bárugata 33 - beiðni um að breyta einbýli í tvíbýli. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 2409011 - Nýtingarhlutfall iðnaðar og athafnasvæða ASKBR. Tekið fyrir sérstaklega.
8. 2501061 - Víkursandur uppskipting lóða Óv. DSKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
9. 2501048 - Merkjalýsing - Samsett aðgerð - Auðsholtshjáleiga (L171673). Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
10. 2501047 - Merkjalýsing - Samsett aðgerð - Auðsholt (L171670). Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
17. 2501010F - Bæjarráð Ölfuss - 437
Fundargerð 437.fundar bæjarráðs frá 06.02.2025 til staðfestingar.

1. 2412013 - Umferðarmat Ölfuss. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2502001 - Umsókn um forgang að leikskóladvöl. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2502004 - Beiðni um viðauka vegna auka landfestar. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 2501015 - Drög, Reglur um úthlutun afreksstyrkja. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
8. 2501051 - Umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála. Til kynningar.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
18. 2502002F - Fjölskyldu- og fræðslunefnd - 29
Fundargerð 29.fundar fjölskyldu- og fræðslunefndar frá 12.02.2025 til staðfestingar.

1. 2311012 - Skýrsla leikskólastjóra. Til kynningar.
2. 2311017 - Skýrsla skólastjóra. Til kynningar.
3. 2502012 - Grunnskólinn í Þorlákshöfn - skóladagatal 2025-2026. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2502013 - Drög að stefnu nýja leikskólans í Vesturbyggð. Til kynningar.
5. 2501054 - Frigg - nemendagrunnur. Til kynningar.
6. 2501055 - Gervigreind í skólastarfi. Til kynningar.
7. 2501003 - Reglur um garðaþjónustu fyrir elli- og örorkulífeyrisþega í Sveitarfélaginu Ölfusi. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
19. 2502005F - Stjórn vatnsveitu - 21
Fundargerð 21.fundar stjórnar vatnsveitu frá 19.02.2025 til staðfestingar.

1. 2502026 - Beiðni um tengingu við vatnsveituna Þorlákshafnar. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
20. 2502004F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 63
Fundargerð framkvæmda- og hafnarnefndar frá 19.02.2025 til staðfestingar.

1. 2501019 - Landeldisgjald. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2406028 - Suðurvarabryggja-Yfirborðsfrágangur. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2307020 - Suðurvararbryggja endurbygging stálþils. Til kynningar.
4. 2109002 - Stækkun hafnarinnar Áfangi 1. Suðurvarargarður og Suðurvararbryggja. Til kynningar.
5. 2502022 - Ný lýsislögn á Skarfaskersbryggju. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
6. 2501021 - Framkvæmdaráætlun 2024-25. Til kynningar.
7. 2502034 - Beiðni um viðauka: lagfæring á Skarfaskersbryggju. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
21. 2502006F - Bæjarráð Ölfuss - 438
Fundargerð 438. fundar bæjarráðs frá 20.02.2025 til staðfestingar.

1. 2409039 - Útboð sorphirðu í Ölfusi. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2502029 - Umsókn um leyfi fyrir hjólreiðaviðburði 21.6.2025. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2409029 - Umsókn um forgang að leikskóladvöl. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2502030 - Staða vegakerfis í nágrenni Þorlákshafnar. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2502032 - Tilkynning um undirskriftasöfnun vegna verndunar útivistarsvæðis við Hafnarnesvita. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
6. 2502031 - Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga. Til kynningar.
7. 2502033 - Beiðni um frestun á greiðslu gatnagerðargjalda. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
8. 2502040 - Veðskuldabréf. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
22. 2502003F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 88
Fundargerð 88.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 19.02.2025 til staðfestingar.

1. 2411025 - Sögusteinn DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
2. 2502002 - Merkjalýsing - Samsett aðgerð - Hafnarskeið 16 (L233055). Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2502003 - Merkjalýsing - Samsett aðgerð - Hafnarbakki 1 (L231098)1. 2411025 - Sögusteinn DSK. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2411024 - Laxabraut 12 DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
5. 2305039 - DSK Hótel og tengd starfsemi í Hafnarvík v Leirur í Þorlákshöfn - Golfvöllur. Tekið fyrir sérstaklega.
6. 2502017 - STARFSLEYFI vegna jarðborunar á neysluvatnsholu VB20 á vatnsverndarsvæði. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 2501053 - Hellisheiðarvirkjun 21. DSKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
8. 2502018 - Hellisheiðarvirkjun - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna borunar vinnsluborholu við skiljustöð 2. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
9. 2502019 - Útvíkkun þéttbýlismarka Þorlákshafnar ASKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
10. 2502020 - Virkjunarsvæði í Hverahlíð DSKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
11. 2502021 - Staður - stækkun byggingarreits - Óv. DSKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
12. 2402082 - Stóragerði ASK. Tekið fyrir sérstaklega.
13. 2408036 - Stóragerði DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
14. 2402017 - Grímslækjarheiði - Hraunkvíar DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
15. 2401044 - Grímslækjarheiði ASK. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
16. 2406023 - Útikennslustofa í Skrúðgarði. Tekið fyrir sérstaklega.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
23. 2502001F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 73
Fundargerð 73.fundar afgreiðslunefndar byggingarfulltrúa frá 20.02.2025 til kynningar.

1. 2502037 - Umsókn um lóð - Bárugata 33
2. 2502008 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Elsugata 29-31 - Flokkur 2
3. 2502009 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Bárugata 35 - Flokkur 2
4. 2502010 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Bárugata 37 - Flokkur 2
5. 2502011 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Hafnarskeið 12, Svartasker 2 - Flokkur 2

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðir til kynningar
24. 1602012 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar SASS.
Fundargerð 618.fundar stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga frá 24.01.2025 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
25. 1603005 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 960.fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 13.12.2024, 961.fundar frá 17.01.2025, 962.fundar frá 22.01.2025 og 963.fundar frá 31.01.2025 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
26. 1603010 - Málefni fatlaðs fólks Fundargerðir stjórnar Bergrisans.
Fundargerð 81.fundar stjórnar Bergrisans frá 27.01.2025 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
27. 2302026 - Arnardrangur hses.fundargerðir stjórnar
Fundargerð 21.fundar stjórnar Arnardrangs frá 27.01.2025 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
28. 1701026 - Brunamál Fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu
Fundargerð 25.fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu frá 12.02.2025 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
29. 2009027 - Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Fundargerð 80.fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 31.01.2025 til kynningar.
30. 1605028 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir Héraðsnefndar Árnesinga.
Fundargerðir 26.fundar stjórnar Héraðsnefndar Árnesinga frá 17.12.2024 og 27.fundar frá 04.02.2025 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:04 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?