Fundargerðir

Til bakaPrenta
Fjölskyldu- og fræðslunefnd - 40

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
25.03.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sigríður Vilhjálmsdóttir formaður,
Davíð Arnar Ágústsson varaformaður,
Haraldur Guðmundsson 3. varamaður,
Hrafnhildur Lilja Harðardóttir aðalmaður,
Hrafnhildur Hlín Hjartardóttir leikskólastjóri,
Helena Helgadóttir leikskólastjóri,
Ólína Þorleifsdóttir skólastjóri,
Svala Ósk Sævarsdóttir áheyrnarfulltrúi,
Ragnheiður María Hannesdóttir áheyrnarfulltrúi,
Sigurhanna Björg Hjartardóttir áheyrnarfulltrúi,
Jóhanna M Hjartardóttir sviðsstjóri,
Eyrún Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Jóhanna M. Hjartardóttir, sviðsstjóri
Formaður setti fund og óskaði eftir athugasemdum við fundarboð en engar bárust.

Hlynur Logi boðaði forföll, varamaður hafði ekki tök á að mæta.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2311012 - Skýrsla leikskólastjóra Bergheima
Lögð er fram skýrsla leikskólastýru Bergheima fyrir mars 2026. Í skýrslu kom fram að foreldraráð hefur samþykkt leikskóladagatal 2026 til 2027 og skólanámskrá án athugasemda. Niðurstöður foreldrakönnunar Skólapúlsins voru almennt mjög jákvæðar og skólinn mælist yfir landsmeðaltali í flestum þáttum. Unnið hefur verið að úrbótum þar sem tækifæri til framfara komu fram, m.a. með aukinni þátttöku foreldra.

Greint var frá fræðsluverkefni elstu barna í umferðaröryggi og innritun nýrra barna á yngstu kjarna á vormánuðum.

Nefndin þakkar leikskólastýru fyrir greinargóða skýrslu. Nefndin fagnar jákvæðum niðurstöðum foreldrakönnunar og þeim árangri sem fram kemur í starfi leikskólans.
2. 2603050 - Leikskólinn Bergheimar - foreldrakönnun, niðurstöður
Leikskólastjóri kynnti niðurstöður foreldrakönnunar Skólapúlsins 2026.
Nefndin fagnar þeim árangri sem fram kemur í starfi leikskólans. Jafnframt lýsir nefndin ánægju með að brugðist hafi verið við þeim þáttum sem mældust undir landsmeðaltali og hvetur til áframhaldandi þróunarstarfs í góðu samstarfi við foreldra.
3. 2603051 - Leikskólinn Bergheimar - skólanámskrá
Skólanámskrá Bergheima lögð fram til kynningar og staðfestingar.
Nefndarmenn staðfestu samhljóða skólanámskrá Bergheima
4. 2603052 - Leikskólinn Bergheimar - Leikskóladagatal 2026-2027
Leikskóladagatal Bergheima lagt fram til skoðunar og staðfestingar.
Nefndarmenn lýsa ánægju með að grunnskóli og leikskólar hafi, eftir því sem unnt er, samræmt skóladagatöl sín. Nefndin staðfestir einróma leikskóladagatal Bergheima.
5. 2508002 - Skýrsla leikskólastjóra Hraunheima
Lögð er fram skýrsla leikskólastýru Hraunheima fyrir mars 2026.

Starfsemi leikskólans Hraunheima hefur verið lífleg undanfarið með fjölbreyttum viðburðum og verkefnum. Haldið var upp á „Glitrandi dag“ og foreldrum boðið í morgunkaffi með góðri þátttöku. ART-tímar fyrir elstu börnin eru hafnir og hafa gengið vel.

Fræðsla og viðburðir, svo sem heimsókn tannlæknis og þátttaka í Alþjóðlegum downs-degi, hafa stuðlað að aukinni vitund og umræðu meðal barna.

Framundan eru breytingar á skipulagi, m.a. ráðning í nýtt stöðugildi og tilfærsla á skólahópi til að bæta rými og aldursskiptingu.

Skólahópurinn hefur tekið þátt í fjölbreyttum útivistarverkefnum sem hafa notið mikilla vinsælda.

Fundurinn þakkar fyrir skýrsluna og lýsir ánægju með öflugt og fjölbreytt starf leikskólans. Nefndin fagnar áherslu á félagsfærni, vellíðan og fjölbreytileika í starfi skólans.
6. 2603053 - Leikskólinn Hraunheimar - leikskóladagatal 2026-2027
Leikskóladagatal Bergheima lagt fram til skoðunar og staðfestingar.
Nefndarmenn lýsa ánægju með að grunnskóli og leikskólar hafi, eftir því sem unnt er, samræmt skóladagatöl sín. Nefndin staðfestir einróma leikskóladagatal Hraunheima.
7. 2311017 - Skýrsla skólastjóra
Lögð er fram skýrsla skólastjóra grunnskólans fyrir mars 2026. Í skýrslunni er farið yfir helstu atriði í starfsemi skólans á tímabilinu.

- Skólastarf hefur verið líflegt með fjölbreyttum viðburðum, m.a. öskudegi, þemadögum og hamingjuleikum. Nemendaráð hafa staðið fyrir virkri dagskrá á öllum stigum.
- Unglingadeild fór í vel heppnaða skíðaferð í Bláfjöll.
- Teknir hafa verið upp samstarfsfundir með foreldrum til að efla samskipti og samstöðu; reynslan er mjög góð.
- Lestrarátaki lauk með góðum árangri og verður áfram unnið markvisst að bættu læsi nemenda.
- Próf í Matsferli MMS hafa verið lögð fyrir fleiri árganga en skylda kveður á um til að fá heildstæða mynd af stöðu nemenda.
- Kennarar deildu þekkingu sín á milli á innanhúsnámskeiði, m.a. um tækninotkun og gervigreind í kennslu.
- Starfsmannasamtöl eru í gangi og undirbúningur næsta skólaárs hafinn; mönnun lítur vel út.
- Gott samstarf er við foreldrafélagið, sem m.a. skipuleggur páskaeggjaleit fyrir nemendur.
- Kynfræðsluvika stendur yfir á unglingastigi með fjölbreyttri fræðslu.

Fjölskyldu- og fræðslunefnd þakkar skólastjóra fyrir greinargóða skýrslu og fagnar öflugu og fjölbreyttu skólastarfi. Nefndin lýsir ánægju með áherslu á læsi, líðan nemenda og faglega þróun kennara og hvetur til áframhaldandi góðs starfs.
8. 2603048 - Grunnskólinn - námsframvinda barna í lesfimi
Skólastjóri kynnti niðurstöður lesfimimælinga og samanburð við nokkur sveitarfélög þar sem samfélagsgerðin er svipuð og í Ölfusi.
Nefndin þakkar kynninguna.
9. 2603044 - Grunnskólinn í Þorlákshöfn - Uppsagnarbréf frá skólastjóra
Ólína Þorleifsdóttir hefur sagt upp starfi sínu sem skólastjóri Grunnskólans í Þorlákshöfn frá og með 1. ágúst næstkomandi.

Ólína lætur af störfum með miklu þakklæti og stolti yfir því öfluga faglega starfi og hlýja skólasamfélagi sem hefur einkennt skólann á hennar starfstíma. Hún hefur lagt ríka áherslu á samvinnu, fagmennsku og velferð nemenda, sem hefur skilað sér í jákvæðum og traustum skólabrag.

Ákvörðun hennar um að láta af starfi er tekin á jákvæðum forsendum, þar sem hún hyggst takast á við nýjar áskoranir. Uppsögnin er því ekki tilkomin vegna óánægju, heldur kveður hún skólann með hlýhug og velvilja í garð starfsfólks, nemenda og samfélagsins alls.

Nefndin þakkar Ólínu Þorleifsdóttur fyrir ómetanlegt starf sem skólastjóri Grunnskólans í Þorlákshöfn.

Á starfstíma sínum hefur Ólína sýnt framúrskarandi fagmennsku, forystu og einlægan metnað fyrir velferð nemenda og starfsfólks.

Nefndin lýsir yfir miklu þakklæti fyrir framlag hennar til skólastarfsins og samfélagsins í heild og óskar henni velfarnaðar í þeim verkefnum sem hún tekur sér fyrir hendur í framtíðinni.
10. 2602031 - Barnaþing í Ölfusi 2026
Skýrsla, með samantekt yfir helstu niðurstöður barnaþingsins í Ölfusi sem var haldið þann 11. febrúar síðastliðinn, lögð fram til kynningar.

Börn úr leik- og grunnskólum tóku þátt og ræddu um málefni sem snúa að þeirra daglega lífi, velferð og réttindum. Markmiðið með þinginu var að tryggja að raddir barna heyrist og að þau fái tækifæri til að hafa áhrif á samfélagið sitt í anda Barnasáttmálans.

Fundurinn fagnar framtakinu og undirstrikar mikilvægi þess að leita markvisst eftir sjónarmiðum barna við stefnumótun og ákvarðanatöku. Jafnframt er lögð áhersla á að tillögur barna verði teknar til umræðu og eftir atvikum unnið með þær hjá bæjaryfirvöldum.
11. 2602023 - Málefni fatlaðra - sumarfrístund fyrir börn
Kynning á fyrirhugaðri dagskrá fyrir fötluð börn í sumar. Kynningabréf var sent til foreldra þar sem kom fram að fyrirhugað er að bjóða uppá Sumarféló fyrir fötluð börn í Ölfusi.

Markmiðið er að bjóða uppá fjölbreytt og skemmtileg verkefni fyrir eldri börn (5.bekkur til 18 ára) næsta sumar. Tilgangurinn er að skapa öruggt, jákvætt og uppbyggilegt umhverfi þar sem hvert barn fær tækifæri til að blómstra, efla hæfni sína og njóta samveru með öðrum.

Nefndin fagnar fyrirhuguðu sumarverkefni fyrir fötluð börn og fjölbreytt, uppbyggilegt og einstaklingsmiðað starf.

Nefndin hvetur til áframhaldandi þróunar verkefnisins og lýsir yfir stuðningi við framgang þess.
12. 2602029 - Barnamenningarhátíð á Suðurlandi
Við í Ölfusi í samstarfi við SASS, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, erum að taka þátt í barnamenningarhátíð á Suðurlandi sem er fyrirhuguð dagana 20. til 26. apríl.

Drög að dagskrá í Ölfusi er tilbúin en horft er til þess að skólarnir, bókasafnið og íþróttamiðstöðin verði með viðburði með börnum og fyrir börn með áherslu á fjölmenningu.

Dagskráin er unnin af sviðsstjóra í samvinnu við forstöðumann bókasafnsins.

Nefndin lýsir ánægju með fyrirhugaða barnamenningarhátíð í Ölfusi í samstarfi við SASS.
Nefndin fagnar því tækifæri sem felst í þátttöku Ölfuss í Barnamenningarhátíð sem miðar að því að efla menningarstarf fyrir börn og ungmenni á svæðinu, styrkja sköpun og þátttöku.


Stjórnendur og áheyrnafulltrúar fræðslumála viku af fundi.
Mál til kynningar
13. 2603046 - Velferðarþjónusta - fundargerð stjórnar Bergrisans
Fundargerð 91. stjórnarfundar Bergrisans lögð fram til kynningar.
Nefndin þakkar kynninguna.
14. 2603045 - Velferðarþjónusta - fundargerð farsældarráðs
Fundargerð 1. fundar farsældarráðs lögð fram til kynningar.
Nefndin þakkar kynninguna.
15. 2603047 - Velferðarþjónusta - Málefni barnaverndar 2025
Sviðsstjóri velferðarþjónustu lagði fram til kynningar samantekt um málefni barnaverndar í Ölfusi árið 2025.
Nefndin þakkar sviðsstjóra kynningu á samantekt yfir málefni barnaverndar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?