| |
| 1. 2602025 - Beiðni um dýrahald í félagslegri íbúð aldraðra | |
Þrátt fyrir einlægan skilning á erindi bréfritara getur bæjarráð ekki orðið við beiðni um dýrahald í félagslegri íbúð aldraðra.
Samkvæmt leigusamningi, sem bréfritari undirritaði 21. október 2025, kemur fram að gæludýrahald er ekki heimilt í húsinu. Þar við bætist að í sama íbúðargangi eru tveir íbúar með ofnæmi fyrir köttum. Þar með talið íbúi í næstu íbúð við bréfritara.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 2. 2603002 - Beiðni um viðauka - Grunnskólinn | |
Bæjarráð samþykkir beiðnina.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 3. 2602421 - Beiðni um viðauka vegna Sambyggðar 8 | |
Bæjarráð samþykkir beiðnina.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 4. 2603004 - Boð um forkaupsrétt á skipinu Vinur ÁR060 | |
Bæjarráð þakkar fyrir upplýsingar um fyrirhugaða sölu skipsins og áréttingu um forkaupsrétt með vísan til laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Þar sem skipið verður selt án aflahlutdeilda telur bæjarráð ekki forsendur fyrir því að nýta forkaupsréttinn í þessu tilviki og fellur því frá honum.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|