Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarráð Ölfuss - 445

Haldinn í fjarfundi,
05.06.2025 og hófst hann kl. 12:15
Fundinn sátu: Grétar Ingi Erlendsson formaður,
Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir aðalmaður,
Vilhjálmur Baldur Guðmundsson 1. varamaður,
Berglind Friðriksdóttir áheyrnarfulltrúi,
Elliði Vignisson bæjarstjóri,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sandra Dís Hafþórsdóttir, sviðsstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 1602017 - Fjármál Fjárhagsupplýsingar Sveitarfélagið Ölfus.
Fyrir bæjarráði lá árshlutauppgjör fyrir fyrstu 4 mánuði ársins.
Fjárhagsstaða aðalsjóðs Ölfuss fyrir tímabilið 1. janúar til 30. apríl 2025 er í heild sinni í samræmi við fjárhagsáætlun. Innheimtar skatttekjur námu alls 1.271 milljónum króna, sem jafngildir 31% af áætluðum tekjum ársins, og er það í takti við tekjur sama tímabils fyrra árs þegar tekið er tilliti til þróun íbúafjölda og verðlagsbreytinga, eða 112% miðað við fyrra ár. Útsvar nam 686 milljónum króna, sem samsvarar einnig 31% af áætlun Niðurstaðan endurspeglar stöðugleika í skattstofnum sveitarfélagsins á fyrstu fjórum mánuðum ársins.

Heildarútgjöld vegna fræðslu- og uppeldismála námu 639 milljónum króna, eða 34% af áætlun, sem er 16% hækkun frá sama tímabili fyrra árs. Ræður þar mestu þróun kjarasamninga og fjölgun starfsmanna. Útgjöld til félagsþjónustu voru 184 milljónir króna af áætluðum 607 milljónum, sem er 30% framvinduhlutfall og í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun.

Að teknu tilliti til ofangreindra þátta má heildarniðurstaða tímabilsins teljast viðunandi. Rekstur er í jafnvægi og tekjur og útgjöld að mestu innan ramma fjárhagsáætlunar. Útgjöld í stærstu málaflokkum eru undir 35% hlutfalli af áætlun, sem telst eðlilegt á fyrstu fjórðungum ársins.
2. 2505047 - Beiðni um styrk vegna framkvæmda
Erindi frá Björgunarsveitinni Mannbjörgu þar sem óskað er eftir fjárstuðningi frá sveitarfélaginu vegna framkvæmda við húsnæði sveitarinnar.

Bæjarráð lítur jákvæðum augum á erindið og metur það sem mikilvægt framlag til samfélagsins, ekki síst í ljósi þess stórhugs og metnaðar sem félagið sýnir með fyrirhuguðum framkvæmdum.

Bæjarráð samþykkir að veita einni milljón króna í styrk til verkefnisins og felur starfsmönnum að útfæra greiðslu í samráði við umsækjanda.

Bæjarráð fagnar framtaki félagsins og leggur áherslu á mikilvægi þess að styðja við sjálfsprottið samfélagsstarf sem eflir innviði og velferð bæjarbúa.
3. 2505050 - Beiðni um breytingu á fjárhagsáætlun
Beiðni frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs og skólastjóra grunnskólans um að færa til fjármagn í fjárhagsáætlun ársins. Lagt er til að fresta kaupum á trampólíni að fjárhæð 3.500.000 og nýta peningana í endurnýjun vatnslagna í skólahúsnæðinu.
Bæjarráð samþykkir erindið.
4. 2505056 - Viðauki við fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 2025
Viðauki við fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Suðurlands til staðfestingar. Viðaukinn er gerður vegna hækkunar á ætlun vegna nýrra kjarasamninga. Viðbótarkostnaður Ölfuss er tæplega 740 þúsund.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti.
5. 2505059 - Orlof húsmæðra 2024
Erindi frá Orlofsnefnd húsmæðra í Árnes- og Rangárvallarsýslu vegna greiðslu í orlofssjóð húsmæðra. Samkvæmt 5. gr. laga nr. 53/1972 kemur fram að "til þess að standa straum af kostnaði við orlof húsmæðra skal sveitarsjóður leggja árlega fram fjárhæð" og miðast orlofsgreiðsla við íbúafjölda 1. janúar.

Hlutdeild Ölfuss fyrir árið 2025 er kr. 431.884 og er gert ráð fyrir þeim kostnaði í fjárhagsáætlun ársins.



Bæjarráð samþykkir erindið.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:50 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?