Fundargerðir

Til bakaPrenta
Stjórn vatnsveitu - 26

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
09.02.2026 og hófst hann kl. 15:00
Fundinn sátu: Grétar Ingi Erlendsson formaður,
Björn Kjartansson aðalmaður,
Sigmar Björgvin Árnason sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sigmar B Árnason, Sviðsstjóri/byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2602016 - Breytingar á stofnlögn vatnsveitu við Velli
Eigandi lóðarinnar Skjólkletts 1 við Vallarveg hefur óskað eftir vegna stækkunar bílastæða á lóð að stofnlögn vatnsveitu sem liggur um lóð hans verði lækkuð. Um er að ræða stofnlögn sem lögð var með heimild fyrri landeiganda sem fæðir íbúðabyggð í Saurbæjarlandi að hluta.

Áætlaður kostnaður er 1,2 milljónir.

Afgreiðsla: Nefndin samþykkir tilboð í framkvæmdina og felur starfsmanni að klára málið.
2. 2506028 - Vatnsveita Árbæ
Eigandi kaldavatnsveitu Árbæjarhverfis óskar eftir að nefndin skoði að yfirtaka vatnsveituna í heild.
Afgreiðsla: Nefndin felur starfsmanni að afla frekari upplýsinga um veituna og leggja minnisblað fyrir.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?