Fundargerðir

Til bakaPrenta
Skipulags- og umhverfisnefnd - 107

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
07.02.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Geir Höskuldsson formaður,
Hjörtur S. Ragnarsson varaformaður,
Guðlaug Einarsdóttir aðalmaður,
Vilhjálmur Baldur Guðmundsson aðalmaður,
Hrönn Guðmundsdóttir aðalmaður,
Guðmundur Oddgeirsson áheyrnarfulltrúi,
Sigmar Björgvin Árnason sviðsstjóri,
Sigurður Steinar Ásgeirsson skipulagsfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Sigurður Steinar Ásgeirsson, Sviðsstjóri Skipulags- og lögfræðisviðs


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2510080 - Hafnarsandur 2 - stækkun tengivirkis - Óv. ASKbr
Aðalskipulagsbreytingin var auglýst en engar athugasemdir voru gerðar við hana af umsagnaraðilum. Hún er því lögð fram í óbreyttri mynd til endalegrar samþykktar.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Aðalskipulagsbreytingin er samþykkt. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr 123/2010.
2. 2410072 - Árbær 4 Dýraspítali - ASKbr
- Endurkoma eftir umsagnarferli
Skipulagsbreytingin hefur verið auglýst og er umsagnarferli lokið. Skipulagshöfundur leggur fram samantekt umsagna og viðbrögð við umsögnum auk uppfærðrar skipulagsbreytingar.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 3. mgr. 30. gr. og 2. málsgrein 32. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
3. 2104041 - Aðalból stofnun lóða
Lagt er fram merkjalýsing - uppskipting landeigna - Aðalból 1 leiksvæði, Aðalból 2, Aðalból 3 skrúðgarður, Aðalból 4, Aðalból 5, Aðalból 6, Aðalból 8, Birkiból 2, Birkiból 4, Birkiból 6, Birkiból 8 og Birkiból 10. Merkjalýsing þessi er unnið skv. gildandi deiliskipulagi fyrir íbúðahverfi að Hjarðarbóli 1 í Ölfusi með síðari breytingum og gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036. Stofna á 12 lóðir úr íbúðarhúsalóðinni Aðalból (L176222), sem er með skráða stærð 54.000 m2 í fasteignaskrá HMS en minnkar nú um 50.576 m2 og verður 3.424 m2 og fá staðfang Aðalból vegsvæði. Mannvirki á lóðinni eru: 010101 - íbúð, 020101 - hesthús. Eftir uppskiptingu mhl. 010101 - íbúð tilheyrir Aðalból 4 og mhl. 020101 - hesthús tilheyrir Aðalból 2. Engan kvaðir eru á eigninni.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt.
4. 2602009 - Árbær 4 - Dýraspítali og verslunarlóðir - DSK
Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir dýraspítala og aðra verslunar og þjónustustarfsemi á Árbæjarsvæðinu við Selfoss. Helstu markmið deiliskipulags er að skapa bætta þjónustu í kringum nýjan dýraspítala og eins að koma til móts við þarfir atvinnulífs með uppbyggingu atvinnusvæða í nálægð við dreifbýlið í kringum Selfoss. Um er að ræða 10 lóðir sem eru hver um 0,5 ha. að stærð en lóð dýraspítalans verður 3 ha.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
5. 2510003 - Hrókabólsvegur 1 - aukið nýtingarhlutfall Hjarðarból DSKbr
-Endurkoma eftir athugasemdaferli
Gerðar voru lítillegar athugasemdir við skipulagsuppdrátt sem skipulagshöfundur hefur brugðist við. Uppfært skipulag er lagt fram til endanlegrar samþykktar ásamt samantekt umsagna.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.
6. 2602018 - Mói - stækkun lóðar v. bílastæða - óveruleg DSKbr
Lögð er fram óveruleg breyting á deiliskipulaginu Móa. Í breytingunni felst að ein lóð er stækkuð til að hægt sé að koma fyrir 2 bílastæðum til viðbótar svo kröfur um bílastæðafjölda séu uppfylltar.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulags og byggingarfulltrúum verði heimilað að samþykkja breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
7. 2601081 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Rauðilækur 3
Lagt er fram merkjalýsing - uppskipting landeignar - Rauðilækur 3. Merkjalýsing þessi er unnið skv. gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036. Stofna á lóðina Rauðilækur 3 úr jörðinni Rauðilækur (L186507). Lóðin er 17770,2 m2. Jörðin er með skráða stærð 26,4 ha, en minnkar nú og verður 24,6 ha. Enginn matshluti er á nýrri lóð. Kvöð er á lóðinni vegna legu aðkomuvegs að Rauðalæk, L186507 sem liggur að hluta innan lóðarmarka nýrrar lóðar.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Merkjalýsing samþykkt. Nefndin vekur athygli á að deiliskipuleggja þarf lóðina áður en framkvæmdir hefjast á henni.
8. 2602008 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Kröggólfsstaðir Réttarhola
Lagt er fram merkjalýsing - uppskipting landeignar - Kröggólfsstaðir Réttarhola. Merkjalýsing þessi er unnið skv. gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036 og deiliskipulagi sem Bæjarstjórn Ölfuss samþykki á 351. fundi þann 27/11/2025. Stofna á lóðina Kröggólfsstaðir Réttarhola úr jörðinni Kröggólfsstaðir (L171757). Lóðin er 1500,0 m2. Jörðin er ekki með skráða stærð í fasteignaskrá HMS, en minnkar nú um það sem því nemur. Enginn matshluti er á nýrri lóð.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Geir Höskuldsson vék af fundi við afgreiðslu málsins. Samþykkt með fyrirvara um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar og birtingu hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?