354.fundur bæjarstjórnar Ölfuss

Bæjarstjórn Ölfuss - 354

 

FUNDARBOÐ

354. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í Ráðhúsi Ölfuss, fimmtudaginn 26. febrúar 2026 og hefst kl. 16:30.

 

Dagskrá :

Almenn mál

1.

2602419 - Breytingar á gjaldskrá leikskóla

 

   

2.

2601083 - Fjölgun kjördeilda í Sveitarfélaginu Ölfusi

 

Lagt er til að fjölga kjördeildum í sveitarfélaginu um eina. Þannig verði starfandi ein yfirkjörstjórn og ein undirkjörstjórn.

 

   

3.

1806017 - Kosning í nefndir og ráð Sveitarfélagsins Ölfuss 2022-2026

 

Kosning 3 aðalmanna og 3 varamanna í yfirkjörstjórn.
Kosning 3 aðalmanna og 3 varamanna í undirkjörstjórn.

 

   

4.

2602417 - Samþykkt um hundahald

 

Endurskoðun á samþykkt um hundahald í Sveitarfélaginu Ölfusi. Lagt er til við bæjarstjórn að vísa samþykktinni til síðari umræðu.

 

   

5.

2602418 - Samþykkt um kattahald

 

Endurskoðun á samþykkt um kattahald í Sveitarfélaginu Ölfusi. Lagt er til við bæjarstjórn að vísa samþykktinni til síðari umræðu.

 

   

6.

2510080 - Hafnarsandur 2 - stækkun tengivirkis - Óv. ASKbr

 

Aðalskipulagsbreytingin var auglýst en engar athugasemdir voru gerðar við hana af umsagnaraðilum. Hún er því lögð fram í óbreyttri mynd til endalegrar samþykktar.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Aðalskipulagsbreytingin er samþykkt. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

7.

2410072 - Árbær 4 Dýraspítali - ASKbr

 

Endurkoma eftir umsagnarferli
Skipulagsbreytingin hefur verið auglýst og er umsagnarferli lokið. Skipulagshöfundur leggur fram samantekt umsagna og viðbrögð við umsögnum auk uppfærðrar skipulagsbreytingar.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 3. mgr. 30. gr. og 2. málsgrein 32. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

8.

2602009 - Árbær 4 - Dýraspítali og verslunarlóðir - DSK

 

Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir dýraspítala og aðra verslunar- og þjónustustarfsemi á Árbæjarsvæðinu við Selfoss. Helstu markmið deiliskipulags er að skapa bætta þjónustu í kringum nýjan dýraspítala og eins að koma til móts við þarfir atvinnulífs með uppbyggingu atvinnusvæða í nálægð við dreifbýlið í kringum Selfoss. Um er að ræða 10 lóðir sem eru hver um 0,5 ha. að stærð en lóð dýraspítalans verður 3 ha.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

9.

2510003 - Hrókabólsvegur 1 - aukið nýtingarhlutfall Hjarðarból DSKbr

 

Endurkoma eftir athugasemdaferli.
Gerðar voru lítillegar athugasemdir við skipulagsuppdrátt sem skipulagshöfundur hefur brugðist við. Uppfært skipulag er lagt fram til endanlegrar samþykktar ásamt samantekt umsagna.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

10.

2602411 - Námur í Lambafelli E2 og E3 - DSK

 

Lögð er fram skipulagslýsing vegna efnisnáma E2 og E3 í Lambafelli.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

11.

2602035 - Mýrarsel 9 - DSK

 

Lagt er fram deiliskipulag fyrir 5 íbúðalóðir á Mýrarseli 9. Hver lóð yrði um 0,53 ha að stærð. Á hverri lóð yrði heimilt að reisa einbýlishús ásamt stakstæðum eða sambyggðum bílskúr og 80 m2 vinnustofu/gróðurhús.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

12.

2602405 - Framkvæmdaleyfi - Breikkanir vegamóta vegna vindmylluflutninga

 

Vegagerðin sækir um framkvæmdaleyfi til breikkunar tiltekinna vegamóta á þjóðvegum. Breikkanirnar eru gerðar til að mæta væntalegum vindmylluflutningum í gegnum Sveitarfélagið Ölfus á vor og sumarmánuðum 2026.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt.

 

   

13.

2602002 - Iðnaðarsvæði sunnan bolaöldu DSK

 

Lagt er fram deiliskipulag fyrir iðnaðarsvæði norðvestur af Geitafelli. Deiliskipulagið felur í sér staðsetningu tveggja borplana fyrir rannsóknarborholur. Gert er ráð fyrir framlengingu vegslóða sem liggur frá Litla Sandfelli norður fyrir Geitafell.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt með fyrirvara um skriflega heimild allra þeirra landeigenda, hvers landi þarf að framkvæma á. Að fengnu slíku samþykki beinir nefndin því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

14.

2602399 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Lághitaborhola í landi bakka

 

Veitur leggja fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna borunar lághitaborholu í landi Bakka. Borholunni er ætlað að mæta aukinni eftirspurn eftir heitu vatni til Þorlákshafnar. Matsskyldufyrirspurn er í umsagnarferli hjá Skipulagsstofnun en umsagnarfrestur er til 23. febrúar 2026.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi er veitt með fyrirvara um að framkvæmdin verði ekki metin umhverfismatsskyld eða annað komi fram sem mælir gegn framkvæmdinni, í matsskyldufyrirspurn sem er í vinnslu hjá Skipulagsstofnun.

 

   

Fundargerðir til staðfestingar

15.

2601003F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 51

 

Fundargerð 51.fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 12.01.2026 til staðfestingar.

 

   

16.

2601007F - Bæjarráð Ölfuss - 459

 

Fundargerð 459.fundar bæjarráðs Ölfuss frá 05.02.2026 til staðfestingar.

 

   

17.

2602005F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 107

 

Fundargerð 107.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 09.02.2026 til staðfestingar.

 

   

18.

2602004F - Stjórn vatnsveitu - 26

 

Fundargerð 26.fundar stjórnar vatnsveitu frá 09.02.2026 til staðfestingar.

 

   

19.

2602002F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 81

 

Fundargerð 81.fundar framkvæmda- og hafnarnefndar frá 18.02.2026 til staðfestingar.

 

   

20.

2602006F - Fjölskyldu- og fræðslunefnd - 39

 

Fundargerð 39.fundar fjölskyldu- og fræðslunefndar frá 18.02.2026 til staðfestingar.

 

   

21.

2602007F - Bæjarráð Ölfuss - 460

 

Fundargerð 460.fundar bæjarráðs frá 19.02.2026 til staðfestingar.

 

   

22.

2602009F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 108

 

Fundargerð 108.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 23.febrúar til staðfestingar.

 

   

23.

2602001F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 86

 

Fundargerð 86.fundar afgreiðslunefndar byggingarfulltrúa frá 05.02.2026 til kynningar.

 

   

24.

2602003F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 87

 

Fundargerð 87.fundar afgreiðslunefndar byggingarfulltrúa frá 19.02.2026 til kynningar.

 

   

Fundargerðir til kynningar

25.

1703033 - Menningarmál Fundargerðir stjórnar Listasafns Árnesinga

 

Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga frá 27.01.2026 til kynningar.

 

   

26.

1805041 - Menningarmál Fundargerðir stjórnar Byggðasafns Árnesinga

 

Fundargerð 20.fundar stjórnar Byggðasafns Árnesinga frá 28.01.2026 til kynningar.

 

   

27.

2009052 - Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Suðurlands

 

Fundargerð 251.fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands frá 28.01.2026 til kynningar. Einnig er til kynningar bókun heilbrigðisnefndar vegna frumvarps um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga.

 

   

28.

1603005 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

 

Fundargerð 992.fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 23.01.2026 og 993.fundar frá 18.02.2026 til kynningar.

 

   

29.

2009027 - Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.

 

Fundargerð 88.fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 17.10.2025 og 89.fundar frá 09.01.2026 til kynningar.

 

   

30.

1602012 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar SASS.

 

Fundargerð 633.fundar stjórnar SASS frá 06.02.2026 til kynningar.

 

   

31.

2302026 - Arnardrangur hses.fundargerðir stjórnar

 

Fundargerð 25.fundar stjórnar Arnardrangs frá 03.02.2026 til kynningar.

 

   

32.

1603010 - Málefni fatlaðs fólks Fundargerðir stjórnar Bergrisans.

 

Fundargerð 91.fundar stjórnar Bergrisans frá 03.02.2026 til kynningar.

 

   

33.

1701032 - Fræðslumál Fundagerðir stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga.

 

Fundargerð 215.fundar stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga frá 10.02.2026 til kynningar.

 

   

24.02.2026

Elliði Vignisson, bæjarstjóri.

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?