355.fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Ölfuss

Bæjarstjórn Ölfuss - 355

 

FUNDARBOÐ

355. fundur bæjarstjórnar

verður haldinn í Ráðhúsi Ölfuss, fimmtudaginn 26. mars 2026 og hefst kl. 16:30.

 

Dagskrá :

Almenn mál

1.

2603032 - Barna- og unglingaþing Ölfuss 2026 - skýrsla

 

Fyrir fundinum liggur skýrsla með niðurstöðum barnaþings sem haldið var í sveitarfélaginu 11.febrúar 2026. Á fundinn koma fulltrúar úr nemendaráði grunnskólans og ungmennaráði sveitarfélagsins til að fylgja skýrslunni úr hlaði.

 

   

2.

2603060 - Ársreikningar Sveitarfélagsins Ölfuss 2025

 

Ársreikingar Sveitarfélagsins Ölfuss fyrir árið 2025 lagðir fram til fyrri umræðu.

 

   

3.

1806017 - Kosning í nefndir og ráð Sveitarfélagsins Ölfuss 2022-2026

 

Kosning 3 aðalmanna og 3 varamanna í yfirkjörstjórn.
Kosning 3 aðalmanna og 3 varamanna í undirkjörstjórn.

 

   

4.

1806017 - Kosning í nefndir og ráð Sveitarfélagsins Ölfuss 2022-2026

 

Kosning 3 aðalfulltrúa og 3 varafulltrúa á aðalfundi Héraðsskjalasafns Árnesinga, Listasafns Árnesinga, Byggðasafns Árnesinga, Tónlistarskóla Árnesinga og Brunavarna Árnessýslu.

 

   

5.

2602418 - Samþykkt um kattahald

 

Samþykkt um kattahald - síðari umræða.

 

   

6.

2602417 - Samþykkt um hundahald

 

Samþykkt um hundahald - síðari umræða.

 

   

7.

2602018 - Mói - stækkun lóðar v. bílastæða - óveruleg DSKbr

 

Lögð er fram óveruleg breyting á deiliskipulagi Móahverfis. Í breytingunni felst að ein lóð er stækkuð til að hægt sé að koma fyrir 2 bílastæðum til viðbótar svo kröfur um bílastæðafjölda séu uppfylltar.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulags- og byggingarfulltrúum verði heimilað að samþykkja breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

8.

2603057 - Tengivirki á Völlum - DSK

 

Lagt er fram deiliskipulag á Völlum þar sem staðsett er tengivirki Landsnets við Hveragerði. Efla þarf tengivirkið til að auka afhendingagetu raforku á svæðinu og því er ráðgerð stækkun.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

9.

2603036 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna rannsóknarborholu

 

OR sækir um framkvæmdaleyfi vegna rannsóknarborholu við Lágaskarð. Holan verður boruð á svæði sem er skilgreint sem iðnaðarsvæði í aðalskipulagi og er ætlað að kortleggja jarðhitaauðlindina á svæðinu. Boruð verður grennri hola en hefðbundnar vinnsluholur og nýtist ekki sjálfstætt sem vinnsluhola síðar.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt. Eftirfarandi bókun var lögð fram á fundinum af Guðmundi Oddgeirssyni: Enn og aftur heldur OR áfram með bútasauminn, einn skiki á eftir öðrum er tekinn af ósnortnu landi. Núna óskar OR eftir leyfi til að fara inn í Lakadal með tilheyrandi vegslóða og borplani. Engin heildarsýn liggur fyrir á Hellisheiðarsvæðinu í því hversu langt á að ganga í að vaða yfir náttúru svæðisins. Er kominn tími á málstofu um hverju eigi að fórna, hvort eigi að skilgreina Hellisheiðarsvæðið í heild sinni sem orkuvinnslusvæði, frá Bláfjöllum í vestri, Skálafell með Norður- og Suðurhálsum, Stóra- og Litla Meitli og Henglinum, eða ekki? Ég velti fyrir mér hvort að baráttan fyrir náttúrunni á þessu svæði sé töpuð. Guðmundur Oddgeirsson, áheyrnarfulltrúi Íbúalistans.

 

   

Fundargerðir til staðfestingar

10.

2602011F - Bæjarráð Ölfuss - 461

 

Fundargerð 461.fundar bæjarráðs Ölfuss frá 05.03.2026 til staðfestingar.

 

   

11.

2603001F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 109

 

Fundargerð 109.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 11.03.2026 til staðfestingar.

 

   

12.

2603004F - Fjallskilanefnd - 12

 

Fundargerð 12.fundar fjallskilanefndar frá 12.03.2026 til staðfestingar.

 

   

13.

2603003F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 82

 

Fundargerð 82.fundar framkvæmda- og hafnarnefndar frá 18.03.2026 til staðfestingar.

 

   

14.

2603005F - Bæjarráð Ölfuss - 462

 

Fundargerð 462.fundar bæjarráðs frá 19.03.2026 til staðfestingar.

 

   

15.

2603008F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 110

 

Fundargerð 110.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 23.03.2026 til staðfestingar.

 

   

Fundargerðir til kynningar

16.

1701032 - Fræðslumál Fundagerðir stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga.

 

Fundargerð 216.fundar stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga frá 26.02.2026 og 217.fundar frá 24.03.2026 til kynningar.

 

   

17.

1603005 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

 

Fundargerð 994.fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 03.03.2026 til kynningar.

 

   

18.

1703033 - Menningarmál Fundargerðir stjórnar Listasafns Árnesinga

 

Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga frá 20.mars 2026 til kynningar.

 

   

19.

1805041 - Menningarmál Fundargerðir stjórnar Byggðasafns Árnesinga

 

Fundargerð 21.fundar stjórnar Byggðasafns Árnesinga frá 16.03.2026 til kynningar.
Einnig er til kynningar ársskýrsla Byggðasafnsins fyrir árið 2025.

 

   

 

24.03.2026

Elliði Vignisson, bæjarstjóri.

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?