Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarráð Ölfuss - 464

Haldinn í fjarfundi,
16.04.2026 og hófst hann kl. 12:15
Fundinn sátu: Grétar Ingi Erlendsson formaður,
Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir aðalmaður,
Hrönn Guðmundsdóttir aðalmaður,
Berglind Friðriksdóttir áheyrnarfulltrúi,
Elliði Vignisson bæjarstjóri,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sandra Dís Hafþórsdóttir, sviðsstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2604026 - Áhrif skattahækkunar á baðlón á atvinnulíf og íbúa í Ölfusi og Hveragerði
Erindi frá Samtökum ferðaþjónustunnar þar sem vakin er athygli á fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á baðlón.

Aðilar frá Samtökum ferðaþjónustunnar komu inn á fundinn kl. 12:15 og fóru af fundi kl. 12:30

Bæjarráð lýsir yfir áhyggjum af fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á baðlón og telur að slík aðgerð jafngildi í reynd hækkun VSK á ferðaþjónustu í heild. Baðlón eru meðal vinsælustu afþreyingar bæði erlendra og innlendra ferðamanna og gegna mikilvægu hlutverki í atvinnulífi og þjónustu víða um land.

Bæjarráð bendir á að hækkunin muni ekki einungis bitna á ferðamönnum heldur einnig á innlendum neytendum, þar sem virðisaukaskattur leggst á endanlegt verð. Þá séu baðlón lykilþættir í uppbyggingu landsbyggðar, stuðli að lengri dvöl ferðamanna og hafi jákvæð margfeldisáhrif í nærsamfélögum.

Samkvæmt niðurstöðum þjóðhagsgreiningar frá 2024 er líklegt að hækkun VSK á ferðaþjónustu dragi úr eftirspurn, veiki samkeppnishæfni, minnki hagvöxt og skili ekki þeim auknu skatttekjum sem gert er ráð fyrir. Bæjarráð telur jafnframt að sú aðferðafræði sem notuð hefur verið við mat á tekjuáhrifum gefi ekki raunhæfa mynd, þar sem hún tekur ekki tillit til hegðunarbreytinga.

Bæjarráð leggur áherslu á að samkeppnishæfni ferðaþjónustu byggist á stöðugu og fyrirsjáanlegu rekstrarumhverfi. Hækkun VSK gangi gegn þeim markmiðum og geti haft neikvæð áhrif á fjárfestingar og þróun greinarinnar.

Að framangreindu virtu skorar bæjarráð á stjórnvöld að falla frá fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á baðlón og leggja þess í stað áherslu á heildstæða og samráðsbundna stefnumótun um gjaldtöku í ferðaþjónustu.

Samþykkt samhljóða.
2. 2604027 - Beiðni um veðleyfi og veðbandalausn - Thor landeldi
Fyrir bæjarráði lá erindi frá Thor landeldi ehf.þar sem óskað er eftir heimild Sveitarfélagsins Ölfuss til að þinglýsa tryggingabréfi að fjárhæð EUR 38.500.000 til Arion banka hf. á tilgreindar fasteignir að Laxabraut 33, 35, 37 og 39 í Ölfusi. Jafnframt er óskað eftir að sveitarfélagið aflýsi veðskuldabréfi sínu að fjárhæð kr. 301.699.364 af fasteignunum Laxabraut 35 og 39. Þá kemur fram að við þinglýsingu hins nýja tryggingabréfs verði eldra tryggingabréfi að fjárhæð kr. 810.000.000 aflýst.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða beiðni Thor landeldis ehf., enda verði gengið frá málum í samræmi við framlagðar upplýsingar.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að annast frekari framkvæmd málsins og ganga frá nauðsynlegum formlegum samþykktum og undirritunum.

Samþykkt samhljóða.
3. 2604028 - Bréf frá umboðsmanni barna - sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna
Bréf frá umboðsmanni barna þar sem sveitarstjórn er hvött til að koma á umræðufundi með fulltrúum framboða og nemendum grunnskóla í sveitarfélaginu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Jafnframt hvetur umboðsmaður barna sveitarstjórnir og ungmennaráð sveitarfélaga til þess að standa fyrir krakkakosningum í sínu sveitarfélagi í samstarfi við nemendaráð og grunnskóla sveitarfélagsins. Umboðsmaður barna óskar eftir að fá upplýsingar um það hvort og með hvaða hætti sveitarfélagið muni bregðast við þessari hvatningu.

Bæjarráð tekur undir erindið og ítrekar mikilvægi þess að efla þátttöku barna í lýðræðislegri umræðu og ákvörðunartöku í sínu nærumhverfi.

Bæjarráð hvetur framboð til sveitarstjórnarkosninga 2026 til að verða við framkominni hvatningu og taka þátt í umræðufundum með nemendum grunnskóla, þannig að börnum gefist raunhæft tækifæri til að kynna sér málefni framboðanna og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Hvað það varðar leggur bæjarráð þunga áherslu á samstarf við skólana og leiðsögn þeirra.

Jafnframt beinir bæjarráð ákvörðun um krakkakosningu til skólanna í samstarfi við ungmennaráð.

Samþykkt samhljóða
4. 2604030 - Bréf frá SASS vegna samráðsfundar/vinnustofu um endurskoðun byggðaáætlunar
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:40 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?