Velferðarsvið fer með málefni barnaverndar og félagsþjónustu.
Sviðsstjóri velferðarsviðs hefur yfirumsjón með faglegu starfi sviðsins, ásamt yfirmönnum á sviðinu sem eru ráðgjafar í velferðarþjónustu, forstöðumaður íbúðakjarna fatlaðra og deildarstjóri VISS vinnu- og hæfingastöð.
Sviðsstjóri velferðarþjónustu hefur með höndum stefnumótun í þeim málaflokkum sem heyra undir sviðið, stýrir rekstri þeirra með áherslu á forystu í málefnum fjölskyldunnar á víðtækum grunni. Á meðal verkefna er m.a. ábyrgð á stefnumörkun, þekkingaröflun, þekkingarmiðlun og greiningu upplýsinga varðandi viðfangsefni velferðarþjónustu. Sviðstjóri mótar starfsemi sviðsins og framtíðarsýn þess í samræmi við áherslur bæjaryfirvalda.
Þjónusta í velferðarmálum er veitt samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, barnavernd og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Áherslur velferðarþjónustu er að leitast við að veita öfluga, samþætta og þverfaglega þjónustu til að tryggja farsæld allra barna og hamingju íbúa í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Sviðsstjóri velferðarþjónustu og ráðgjafar sjá um þá málaflokka sem snúa að félagslegri þjónustu við íbúa í Ölfusi. Markmið ráðgjafar er tvíþætt, annars vegar að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál og hins vegar að veita stuðning vegna félagslegs eða persónulegs vanda.
Haft er að leiðarljósi að styðja einstaklinga og fjölskyldur til sjálfshjálpar þannig að hver og einn geti notið sín sem best í samfélaginu.
Allir sem eiga lögheimili í Ölfusi geta leitað ráðgjafar sér að kostnaðarlausu.
Viðtalstímar eru eftir samkomulagi í síma 4803800 eða hjá velferd@olfus.is
Starfsmenn velferðarþjónustu:
Eyrún Hafþórsdóttir, sviðsstjóri velferðarþjónustu.
Í velferðarþjónustunni starfa félagsráðgjafar og uppeldis- og menntunarfræðingur.
Helstu verkefni velferðarþjónustu eru:
- barnavernd
- einstaklingar með fötlun
- félagsleg ráðgjöf
- félagsþjónusta
- fjárhagsaðstoð
- heimili og húsnæði
- húsaleigubætur
- málefni fatlaðra