Fundargerðir

Til bakaPrenta
Skipulags- og umhverfisnefnd - 112

Haldinn í fjarfundi,
20.04.2026 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Geir Höskuldsson formaður,
Hjörtur S. Ragnarsson varaformaður,
Guðlaug Einarsdóttir aðalmaður,
Vilhjálmur Baldur Guðmundsson aðalmaður,
Hrönn Guðmundsdóttir aðalmaður,
Sigmar Björgvin Árnason sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sigmar B. Árnason, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2604048 - Beiðni um heimild til að halda sérleið í Jepparally
Tryggvi M. Þórðarson fyrir hönd keppnisstjórnar jepparalls um leyfi til að halda keppnina á vegum sem falla undir sveitarfélagið Ölfus til samræmis við meðfylgjandi leiðarlýsingu og tímaáætlun. Um er að ræða fyrstu keppni i fyrsta Íslandsmótinu í jepparally sem haldið er. Meðfylgjandi er leiðarlýsing jepparalls.
Afgreiðsla: Nefndin fagnar erindinu og því aðdráttarafli sem það skapar, mikilvægt er að hafa samráð við hlutaðeigandi landeigendur, allur utanvegaakstur er stranglega bannaður og mikilvægt að keppnishaldarar lagi til sérleiðirnar eftir sig að keppni lokinni, lokun vega er á ábyrgð keppnishaldara líkt og venjan er í keppnum sem þessum.
Einnig þarf að hafa samráð við Akstursíþróttadeild Þórs vegna mótorkrossbrautar.
Nefndin samþykkir erindið fyrir sitt leiti
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?