Fundargerðir

Til bakaPrenta
Skipulags- og umhverfisnefnd - 98

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
20.08.2025 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Geir Höskuldsson formaður,
Hjörtur S. Ragnarsson varaformaður,
Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir 1. varamaður,
Vilhjálmur Baldur Guðmundsson aðalmaður,
Guðmundur Oddgeirsson áheyrnarfulltrúi,
Sigurður Steinar Ásgeirsson skipulagsfulltrúi,
Kristina Celesova embættismaður,
Fundargerð ritaði: Sigurður Steinar Ásgeirsson, Skrifstofu- og verkefnastjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2506025 - Hafnarsvæði H4 - Höfn í Keflavík - Endurauglýst ASKbr
Lagt er fram erindi vegna endurafgreiðslu aðalskipulagsbreytingar sem snýr að nýju hafnarsvæði H4 í hafnarstæðinu Keflavík, austan Þorlákshafnar. Breytingin var áður samþykkt til auglýsingar af hálfu skipulags- og umhverfisnefndar og bæjarstjórnar, í tengslum við fyrirhugaða mölunarverksmiðju Heidelberg Pozzolanic Materials. Þá var samþykkt bæjarstjórnar skilyrt við jákvæða niðurstöðu í íbúakosningu um þá starfsemi. Þar sem nú liggur fyrir að ekki verður af mölunarverksmiðjunni, og aðalskipulagsbreytingin snýr eingöngu að tilkomu nýs hafnarsvæðis, er málið lagt fram að nýju án tengingar við umrædda verksmiðju.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
2. 2507023 - Merkjalýsing - Uppskipting lóðar - Silfurbraut lóð D
Lagt er fram merkjalýsing - uppskipting landeignar - Silfurbraut lóð D. Merkjalýsing þessi er unnið skv. gildandi deiliskipulagi fyrir Hjarðarból, lóðir 1 og 2 (skipulagsn. 18314) og gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036. Stofnuð er lóðin Silfurbraut lóð D, stærð 375,0 m2 úr Hjarðarból lóð 2 (L222537). Hjarðarból lóð 2 er með skráða stærð 102.856 m2 í fasteignaskrá HMS en minnkar nú um 375,0 m2 og verður 102.481 m2.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt
3. 2507035 - Merkjalýsing - Uppskipting lóðar - Kirkjuferjuhjáleiga I land 4
Lagt er fram merkjalýsing - uppskipting landeignar - Kirkjuferjuhjáleiga I land 4. Merkjalýsing þessi er unnið skv. gildandi deiliskipulagi fyrir Kirkjuferjuhjáleiga I og Kirkjuferjuhjáleiga I land 4 og gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036. Stofnuð er lóðin Kirkjuferjuhjáleiga I land 4, stærð 55.109,6 m2 úr Kirkjuferjuhjáleiga I (L191975). Kirkjuferjuhjáleiga I er með skráða stærð 20,3 ha í fasteignaskrá HMS en minnkar nú um 55.109,6 m m2 og verður 148.302 m2.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Merkjalýsing er samþykkt með fyrirvara um samþykki allra aðliggjandi lóða. Á undirritunarblað vantar inn samþykki landeiganda jarðar 171747.
4. 2508003 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Rannsóknarborhola HR-03 í Hverahlíð
Lagt er fram erindi Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 29. júlí 2025, þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi vegna borunar rannsóknarholu HR-03 í Hverahlíð, innan borsvæðis B2 samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Framkvæmdin felur m.a. í sér gerð borplans, borun holunnar, lagningu aðkomuvegar og veitna, prófanir og frágang.

Fram kemur að framkvæmdin er hluti af umhverfismati Hverahlíðarvirkjunar frá árinu 2008 og rúmast innan þeirra marka sem sett eru í því umhverfismati. Framkvæmdin er jafnframt í samræmi við gildandi aðalskipulag og deiliskipulag og umsókn uppfyllir kröfur 7. gr. reglugerðar nr. 772/2012.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt.
5. 2502047 - Réttarhola deiliskipulag
Lagt er fram deiliskipulag fyrir Réttarholu í landi Kröggólfsstaða. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir byggingu allt að 50 m² dæluhúss við borholu á raskaðri lóð, í samræmi við gildandi aðalskipulag Ölfuss 2020?2036 þar sem svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland (L1). Skipulagssvæðið nýtist til vatnstöku fyrir seiðaeldisstöð á nálægri lóð og fellur framkvæmdin undir heimila notkun samkvæmt aðalskipulagi.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar:

Sigurbjörg Jenný og Geir véku af fundi við afgreiðslu málsins.

Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
6. 2501037 - Laxabraut 5 Fiskeldisstöð DSK
Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir lóðina Laxabraut 5. Á lóðinni er rekin fiskeldisstöð en stefnt er að stækkun starfseminnar.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
7. 2502020 - Virkjunarsvæði í Hverahlíð DSKbr
-Endurkoma eftir athugasemdaferli
Lagt er fram deiliskipulag fyrir Hverahlíð II og Meitla sem tekur til vinnslu- og rannsóknarborhola á svæði sunnan Hellisheiðarvirkjunar. Skipulagið byggir á umhverfismatsskýrslu dags. 11. maí 2025 sem tekið hefur verið til umsagnar í samræmi við lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Lögð eru fram viðbrögð framkvæmdaraðila við þeim umsögnum sem bárust á kynningartíma deiliskipulagsins.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.
8. 2508024 - Merkjalýsing - Akurholt L211957
Lögð er fram merkjalýsing fyrir lóðina Akurholt, L211957.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt.
9. 2508025 - Spóavegur 12 og 12a sameining lóða DSK
Lögð er fram breyting á deiliskipulögunum Spóavegi 12 og Spóavegi 12a. Breytingin felur í sér að gildandi deiliskipulög fyrir lóðirnar eru felld niður en í staðin er lagt fram eitt sameiginlegt deilisskipulag.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
10. 2503010 - Auðsholt DSK
-Endurkoma eftir athugasemdaferli
Tillagan var auglýst frá 10. apríl til 22. maí 2025 og bárust umsagnir frá Veitum, RARIK, Náttúruverndarstofnun, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Vegagerðinni. Tveir síðastnefndu gerðu athugasemdir sem leiddu til eftirfarandi breytinga:

Fráveita var sýnd á uppdrætti í samræmi við umsögn HSL og skýringar um fráveitukerfi uppfærðar í greinargerð, þar á meðal tilvísun í leiðbeiningarit Umhverfisstofnunar og 15. gr. reglugerðar nr. 798/1999.

Málsetning á tengingu við Arnarbælisveg (vegur 375-01) var bætt við uppdrátt.

Að auki voru gerðar smávægilegar lagfæringar á texta greinargerðar í samræmi við athugasemdir.

Í kjölfar síðasta fundar nefndarinnar var ein athugasemd áframsend til skipulagshöfundar sem hefur nú brugðist við með því að uppfæra norðurmörk skipulagsins.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Athugasemd barst frá aðliggjandi landeiganda varðandi hnitpunkta lóðamarka. Skipulagið felur ekki í sér breytingu á landamerkjum, stofnun lóða eða breyting lóðamarka kallar á undirritun allra aðliggjandi landeigenda í gegnum merkjalýsingu.

Skipulagið er því samþykkt en þó með þeim fyrirvara að skipulagsmörk séu færð inn fyrir landamörk og nái ekki inn á aðliggjandi landareignir.

Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.
11. 2508026 - Fríðugata 8-10-12_ Stækkun byggingarreits óv. DSKbr
Lögð er fram óveruleg deiliskipulagsbreyting vegna Fríðugötu 8-10-12. Byggingarreitur lóðarinnar hefur áður verið stækkaður en þessi breyting felur í sér enn frekari stækkun.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgrein 43. greinar skipulagslaga nr 123/2010.
12. 2508032 - Merkjalýsing - Uppskipting lóðar - Hafnarbakki 10
Lagt er fram merkjalýsing - uppskipting landeignar - Hafnarbakki 10. Merkjalýsing þessi er unnið skv. gildandi deiliskipulagsbreytingu fyrir Hafnarsvæði Þorlákshofn - Hreinsistöð dags. B.deild augl. 02/07/2025 fyrir og gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036. Stofnuð er lóðin Hafnarbakki 10, stærð 550,0 m2 úr jörðinni Þorlákshöfn (L171822), jörðin er ekki með skráða stærð í fasteignaskrá HMS en minnkar nú um það sem því nemur. Enginn matshluti og engar kvaðir eru á lóðinni.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?