| |
| 1. 2602391 - Útkomuspá 2025 | |
Bæjarráð þakkar upplýsingarnar. Hvergi leikur vafi á því að rekstur sveitarfélagsins gengur vel og á forsendum fyrirliggjandi rekstrarárangurs er í senn hægt að vernda hátt þjónustustig, draga úr álögum á íbúa og draga úr kostnaðarþátttöku viðkvæmra hópa.
Bæjarráð telur sérstaklega mikilvægt að nýta rekstrarhagnað til að halda áfram að bæta hag barna og barnafjölskyldna. Með það fyrir augum samþykkir bæjarráð að taka upp gjaldfrjálsan leikskóla í allt að 36 stundir á viku frá og með 1. mars. nk. Bæjarráð felur starfsmönnum að útfæra reglur þar að lútandi og leggja fyrir ráðið svo fljótt sem verða má.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 2. 2602015 - Beiðni um viðauka - Egilsbraut 9 íbúð nr7 | |
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 3. 2602036 - Beiðni um viðauka - Selvogsbraut 1 | |
| Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 4. 2602387 - Fræðslumál - beiðni um viðauka | |
Bæjarráð lýsir skilningi á þeim sjónarmiðum sem fram koma í erindinu, en bendir jafnframt á að nauðsynlegt er að reyna að útfæra vinnutímastyttingu með þeim hætti að hún auki ekki rekstrarkostnað. Hvað þann lið varðar telur bæjarráð mikilvægt að stjórnendur leikskóla fái stuðning við endurskoðun forsenda vinnustyttingar.
Varðandi veikindi starfsfólks og beiðni um frekari stöðugildi þá telur bæjarráð að ekki liggi enn fyrir nægjanleg reynsla af starfseminni til að réttlæta varanlegar breytingar á mönnun, enda hefur starfsemi skólans einungis verið í gangi í um fjóra mánuði frá opnun. Mikilvægt er að kanna hvort að jafnvægi náist áður en ráðist er í varanlega ráðningu starfsmanna í afleysingu vegna veikinda.
Bæjarráð bendir jafnframt á að unnið er að innleiðingu reiknilíkans fyrir leik- og grunnskóla í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga. Tilgreint módel tekur sérstaklega á þeim þáttum sem eru nefndir í erindinu og því rétt að nýta niðurstöður þess við frekara mat á forsendum mönnunar og mögulegum breytingum þar að lútandi.
Þá bendir bæjarráð á að fyrr á þessum fundi var samþykkt að innleiða 36 tíma gjaldfrjálsan leikskóla hjá sveitarfélaginu strax um næstu mánaðarmót. Slíkar breytingar eru líklegar til að stytta vinnuviku barna til jafns á við það sem er hjá starfsfólki leikskóla. Bæjarráð telur mikilvægt að kanna sérstaklega hvaða áhrif sú breyting hefur á forsendur leikskólavistar og mönnunarþörf skólans.
Með vísan til framangreinds getur bæjarráð ekki fallist á viðaukann að svo stöddu en felur sviðsstjóra að fylgja málinu eftir í samræmi við ofangreind sjónarmið og leggja fyrir bæjarráð frekari upplýsingar þegar forsendur endurmats liggja fyrir.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 5. 2602389 - Styrktarsjóður EBÍ 2026 | |
Lagt fram.
| | |
|