| |
| 1. 2604058 - Samráðsfundur um endurskoðun byggðaáætlunar | |
| Íþrótta- og tómstundafulltrúi mun fylgjast með fundinum og þeir fulltrúsr ungmennaráðs sem eiga heimangengt ætla að gera það líka. | | |
|
| 2. 2604059 - Erindi frá Færsældarráði á Suðurlandi | |
Ungmennaráð ræddi helstu áskoranir sem snúa að samgöngum og atvinnumálum ungmenna. Niðurstöður benda til þess að strætósamgöngur séu ófullnægjandi, sérstaklega fyrir nemendur í FSu, og að skortur sé á beinum tengingum við Selfoss. Þá er framboð starfa fyrir ungmenni takmarkað, einkum fyrir þau sem ekki hafa bílpróf.
Einnig voru ræddir möguleikar á aukinni samvinnu, svo sem að skipuleggja sameiginlegar ferðir á æfingar utan sveitarfélagsins.
Að lokum undirstrikar ráðið mikilvægi þess að tryggja fjölbreytt íþróttastarf fyrir ungmenni. | | |
|
| 3. 2604060 - Samtal við ungt fólk á Suðurlandi | |
| Íþrótta- og tómstundafulltrúi fer á fundinn ásamt fjórum fulltrúum ungmennaráðs. | | |
|
| 4. 2604061 - Ungmennaráð Ölfuss - hugmyndavinna | |
Ungmennaráð ákvað að fara af stað með nokkur verkefni á næstu mánuðum:
1. Forvarnir gegn spilafíkn Rætt var um mikilvægi forvarna gegn spilafíkn. Ungmennaráð stefnir á að skipuleggja fræðslufyrirlestur í samstarfi við grunnskólann þar sem fjallað verður um áhrif og hættur spilafíknar.
2. Tillögukassi í skólanum Lagt var til að koma upp tillögukassa í samstarfi við félagsmiðstöð og grunnskóla. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem ungmenni geta komið á framfæri hugmyndum sem ungmennaráð tekur til umfjöllunar.
3. Opinn fundur fyrir ungmenni Ákveðið var að stefna að opnum fundi fyrir ungmenni á aldrinum 16?20 ára. Fundurinn mun verða vettvangur fyrir umræður um málefni sem varða ungt fólk í sveitarfélaginu. | | |
|