Fundargerðir

Til bakaPrenta
Stjórn vatnsveitu - 27

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
21.04.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Grétar Ingi Erlendsson formaður,
Björn Kjartansson aðalmaður,
Arnar Árnason aðalmaður,
Sigmar Björgvin Árnason sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sigmar B Árnason, Sviðsstjóri/byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2604045 - Beiðni um tengingu við vatnsveitu sveitarfélags
Örn Karlsson óskar er eftir að Vatnsveita Ölfuss tengist lóðum samkvæmt meðfylgjandi tillögu að deiliskipulagi. Deiliskipulagið er um hluta athafnasvæðisins
AT6 í aðalskipulagi Ölfuss og íbúðarlóðir í kringum gamla bæinn á bæjarholtinu Gljúfurholti í Gljúfurárholti Ölfusi.

Stefnt er að því að hefja uppbyggingu næsta haust á þjónustuhúsi við hjólhýsasvæði á byggingarreit A1. Frekari uppbygging er áætluð á næsta ári.

Afgreiðsla: Nefndin samþykkir með fyrirvara um að það samræmist framkvæmdaráætlun um uppbyggingu vatnsveitunnar í dreifbýlinu.
2. 2604044 - Umsögn um nýtingar á vatnsbóli
Örn Karlsson óskar eftir umsögn stjórnar vatnsveitu um nýtingu á gömlu vatnsbóli í fjallsrótum Reykjafjalls í landi Reykja um 500m fjarlægð frá fyrirhugaðri uppbyggingu Helluholts.
Afgreiðsla: Nefndin setur sig ekki uppá móti nýtingu á mögulegu vatnsbóli.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?