Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarráð Ölfuss - 458

Haldinn í fjarfundi,
15.01.2026 og hófst hann kl. 12:15
Fundinn sátu: Grétar Ingi Erlendsson formaður,
Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir aðalmaður,
Hrönn Guðmundsdóttir aðalmaður,
Berglind Friðriksdóttir áheyrnarfulltrúi,
Elliði Vignisson bæjarstjóri,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Elliði Vignisson, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2601012 - Reglur um afslátt af fasteignagjöldum og holræsagjaldi 2026
Fyrir bæjarráði lágu drög að reglum um afslátt af fasteignagjöldum árið 2026. Drögin byggja á gildandi reglum en með þeim breytingum þó að tekjuviðmið hækka um 6,8 % á milli ára.

Bæjarráð samþykkir reglurnar

Samþykkt samhljóða.
2. 2601020 - Sjóvörn í Herdísarvík - beiðni um framkvæmdaleyfi
Lögð fram beiðni um fjárveitingu vegna framkvæmda við sjóvarnir í Herdísarvík. Áætlaður heildarkostnaður við verkefnið nemur 34 milljónum króna og er hlutur sveitarfélagsins 1/8 eða 4,3 milljónir króna.

Jafnframt er óskað eftir staðfestingu á því að sveitarfélagið hyggist áfram taka þátt í verkefninu og muni standa skil á sínum hluta kostnaðar.

Erindið var tekið fyrir á 105.fundi skipulags- og umhverfisnefndar og var afgreiðsla nefndarinnar eftirfarandi:

Framkvæmdaleyfi veitt.

Bæjarráð samþykkir að veita 4,3 milljónum króna í verkefnið og staðfestir vilja sveitarfélagsins til að ráðist verði í verkið. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna viðauka við fjárhagsáætlun vegna þessa.

Samþykkt samhljóða.

3. 2601022 - Þorlákshafnarlína 2 - samningar um landbætur
Landsnet hyggjast leggja 132kv jarðstreng milli Þorlákshafnar og Hveragerðis sumarið 2026. Strengurinn mun liggja um talsverðan fjölda landareigna, þar á meðal land í eigu Sveitarfélagsins Ölfuss. Þar sem þinglýsa þarf kvöðum um helgunarsvæði strengsins mun fyrirtækið greiða landbætur fyrir land sem fer undir strenginn. Lagt er fram tilboð Landsnets um landbætur og drög að samkomulagi við sveitarfélagið.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti tilboð Landsnets og drög að samkomulagi.

Samþykkt samhljóða.
4. 2601039 - Strætósamgöngur í Ölfusi
Erindi frá íbúa í sveitarfélaginu þar sem óskað er eftir því að sveitarfélagið kanni möguleika á samstarfi við nágrannasveitarfélög um almenningssamgöngur.
Bæjarráð Ölfuss þakkar fyrir erindið og ábendingar um almenningssamgöngur milli Þorlákshafnar og Selfoss. Bæjarráð tekur sérstaklega undir mikilvægi þess að tryggja íbúum í vaxandi byggð, ekki síst börnum og ungmennum, aðgengi að öruggum og skilvirkum samgöngum til náms og tómstunda.

Sveitarfélagið hefur á undanförnum misserum verið í nánu samstarfi við Vegagerðina um þróun almenningssamgangna til og frá Þorlákshöfn. Það hefur meðal annars skilað því að ferðum til Hveragerðis var fjölgað um síðustu áramót og hefur nýting vagnanna aukist verulega og samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er mjög góð eftirspurn eftir þeim ferðum sem þjóna Þorlákshöfn.

Eins og staðan er í dag er ferðatími með Strætó frá Þorlákshöfn að stoppistöð við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi um 41 mínúta á morgnana, sem telst veruleg framför frá fyrra fyrirkomulagi. Þá hefur einnig verið tekið í notkun nýr og aðbúnaðarbetri vagn á þessari leið. Bæjarráð telur þó ljóst að enn sé svigrúm til úrbóta og hafa borist ábendingar frá notendum um að sérstaklega vanti fleiri ferðir til og frá Þorlákshöfn á tímabilinu milli kl. 12 og 15 á daginn.

Varðandi mögulegt samstarf við Árborgarstrætó ber að hafa í huga að sú leið hefur fjölmörg stopp innan Árborgar, þar á meðal á Eyrarbakka, í Tjarnarbyggð. Tengingar við slíka leið gætu því í reynd lengt ferðatíma íbúa Þorlákshafnar til Selfoss fremur en að stytta hann.

Bæjarráð mun áfram fylgjast grannt með þróun almenningssamgangna og halda áfram samtali við Vegagerðina og Strætó um frekari eflingu þjónustu við Þorlákshöfn, með það að markmiði að bæta aðgengi íbúa að námi, vinnu og tómstundum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:30 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?