Sveitarfélagið Ölfus hefur nú hlotið endurvottun á jafnlaunakerfi Ölfuss sem er staðfesting á að jafnlaunakerfi sveitarfélagsins samræmist kröfum jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.
Sveitarfélagið hefur komið sér upp stjórnunarkerfi með innleiðingu jafnlaunastaðals sem tryggir að málsmeðferð og ákvarðanir í launamálum séu byggðar á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun.
Vottorð Versa Vottunar um vottun
