Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarráð Ölfuss - 446

Haldinn í fjarfundi,
19.06.2025 og hófst hann kl. 12:15
Fundinn sátu: Grétar Ingi Erlendsson formaður,
Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir aðalmaður,
Hrönn Guðmundsdóttir aðalmaður,
Elliði Vignisson bæjarstjóri,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sandra Dís Hafþórsdóttir, sviðsstjóri
Berglind Friðriksdóttir áheyrnarfulltrúi H-lista boðaði forföll.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2506013 - Fasteignamat 2026
Samantekt frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs varðandi fasteignamat ársins 2026 í Sveitarfélaginu Ölfusi.

Í minnisblaðinu kemur m.a. fram að fasteignamat á landsvísu hafi hækkað um 9,2% milli ára. Í Sveitarfélaginu Ölfusi hækkar fasteignamat á íbúðarhúsnæði um 11,9%, á atvinnuhúsnæði um 9,4% og á sumarhúsum um 5,6%. Þá liggur fyrir fjöldi íbúða í sveitarfélaginu hafi farið úr 771 í 1053 á fimm árum sem samsvarar 36% fjölgun íbúða. Á sama tíma hefur fasteignamatið hækkað um 145%.

Bæjarráð þakkar upplýsingarnar og telur að hækkandi fasteignamat og fjölgun íbúða sé til marks um velmegun samfélagsins í Sveitarfélaginu Ölfusi. Bæjarráð bendir á að Sveitarfélagið Ölfus hefur nú lækkað álagningarhlutfall fasteignaskatts árlega í 7 ár. Lækkun álagningahlutfalls á þessum tíma nemur 42%.

Bæjarráð Ölfuss samþykkir að taka markvisst mið af hækkun fasteignamats 2026 við undirbúning fjárhagsáætlunar og skattstefnu sveitarfélagsins.

Með hliðsjón af því að fasteignamat í sveitarfélaginu hækkar að meðaltali um 10-12% milli ára, er það skýr stefna bæjarráðs að áfram verði haldið að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatts með það að markmiði að koma í veg fyrir verulegar raunhækk­anir fasteignaskatta á íbúa.

Bæjarráð stefnir því að því að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir komandi ár verði unnið að áframhaldandi lækkun fasteignaskatts, í takti við vaxandi tekjur sveitarfélagsins vegna verðmætaskapandi verkefna og fjölgun íbúa.

Bæjarráð felur starfsmönnum sínum að leggja fram sviðsmyndagreiningu um áhrif mismunandi álagningarhlutfalla á tekjur sveitarfélagsins og útgjaldaþörf í kjölfar nýs fasteignamats við gerð fjárhagsáætlunar.

Samþykkt samhljóða.
2. 2506020 - Erindi frá Félagi Atvinnurekenda vegna fasteignamats 2026
Fyrir bæjarráði lá erindi frá Félagi Atvinnurekenda vegna fasteignamats 2026 þar sem sveitarfélög eru hvött til að stilla álagningu í hóf.

Samhliða voru lagðar fram niðurstöður starfshóps sem skipaður var af fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga, HMS, Húseigendafélagsins, Félags atvinnurekenda og fleiri aðila þar sem unnin var ítarleg úttekt á fyrirkomulagi fasteignamats og fasteignaskatta á Íslandi.

Niðurstöður hópsins eru að núverandi fyrirkomulag fasteignaskatta einkennist af ófyrirsjáanleika, ógagnsæi og miklum matskostnaði sem getur skapað vantraust og ójafnræði.

Bæjarráð þakkar erindið og beinir því til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir komandi ár.

Bæjarráð tekur undir þær tillögur sem lagðar eru fram í minnisblaðinu, sérstaklega varðandi það að komið verði á hámarks árlegri hækkun fasteignaskatta og að kerfið verði einfaldað og samræmt.

Samþykkt samhljóða.
3. 2506027 - Beiðni um viðauka fyrir endurnýjun lofræstisamstæða í ráðhúsi
Sviðstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs óskar eftir viðauka vegna endurnýjunar á 3 lofræstisamstæðum í ráðhúsi Ölfuss.

Til stóð að setja eftirhitara á núverandi samstæður og gert var ráð fyrir 10 milljónum í þá framkvæmd á þessu ári. Við skoðun á nýrri bilun sem varð í einni samstæðunni þá er farin í hraðabreytir o.fl. sem brann yfir. Það svarar ekki kostnaði að gera við þessar samstæður auk þess sem erfitt er að fá varahluti. Það er því skynsamlegast að skipta þeim alveg út og setja nýjar samstæður sem eru með innbyggðum eftirhiturum. Viðbótar kostnaður við þá framkvæmd er 6 milljónir.
Að auki er óskað eftir 5,4 milljónum vegna endurnýjunar stjórnbúnaðar og til að koma fyrir eftirhiturum vegna Versala.

Umbeðin aukafjárveiting er því kr. 11,4 milljónir vegna loftræstikerfis í ráðhúsinu.

Bæjarráð samþykkir erindið og felur starfsmönnum að vinna viðauka vegna málsins.

Samþykkt samhljóða.
4. 2506033 - Beiðni um viðauka vegna íþróttamiðstöðvar
Erindi frá umhverfisstjóra þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins vegna viðgerðar á loftræstingu á efri hæð sundlaugarhúss. Áætlaður kostnaður við viðgerðina er kr. 3.500.000
Bæjarráð samþykkir erindið og felur starfsmönnum að vinna viðauka vegna málsins.

Samþykkt samhljóða.
5. 2506034 - Ósk um lóðarstækkun Norðurbakka 7
Beiðni lóðarhafa Norðurbakka 7 um stækkun lóðarinnar.

Fyrir bæjarráði lá beiðni frá Trucks ehf., þar sem óskað er eftir stækkun á núverandi lóð félagsins að Norðurbakka 7 með því að lóðin að Norðurbakka 9, sem er 2.856 fermetrar að stærð, verði sameinuð í eina heildarlóð.

Í erindinu kemur fram að ástæða beiðninnar sé sú að félagið er í samningaviðræðum við stóran evrópskan aðila í tækjasölu, sem hyggst koma aftur inn á íslenskan markað með starfsemi í Þorlákshöfn. Slík uppbygging kallar á verulega aukið rými, bæði til húsnæðis og lóðar, þar sem áætlað er að 10-12 starfsmenn muni starfa í starfseminni í stað 4-5 eins og áður var áformað.

Fyrirtækið telur Þorlákshöfn henta sérstaklega vel vegna nálægðar við höfn, höfuðborgarsvæðið og lykilsvæði á Suðurlandi og Suðurnesjum. Með því að verða við beiðninni telur félagið að unnt verði að tryggja nauðsynlega aðstöðu fyrir væntanlegan samstarfsaðila og styðja við frekari atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindi Trucks ehf. og samþykkir að veita félaginu heimild til að sameina lóðirnar að Norðurbakka 7 og Norðurbakka 9 í eina heildarlóð, -eða eftir atvikum að fá Norðurbakka úthlutað sem sérlóð.

Bæjarráð telur málið í samræmi við markmið sveitarfélagsins um að styðja við atvinnuuppbyggingu, fjölgun starfa og eflingu hafnarsvæðisins í Þorlákshöfn.

Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram í samvinnu við sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs og Trucks ehf., og tryggja nauðsynlegar skráningar og forsendur í samræmi við gildandi skipulag og lóðaskilmála.

Samþykkt samhljóða.
6. 2505007 - Beiðni um viðauka vegna framkvæmda við bráðabirgðatollaplan og framtíðarathafnarsvæði hafnarinnar við Suðurvarargarð
Fyrir bæjarráði lá beiðni um viðauka vegna framkvæmda við bráðabirgðatollaplan og framtíðarathafnarsvæði hafnarinnar við Suðurvarargarð. Málið hefur áður fengið umfjöllun og samþykki á fundi framkvæmda- og hafnarnefndar 18.06.2025.

Samhliða lá fyrir minnisblað dags. 15. júní 2025 frá Portum verkfræðistofu, unnið fyrir hafnarstjóra Þorlákshafnar, er varðar þörf á viðaukum við fjárhagsáætlun hafnarinnar fyrir árið 2025 vegna framkvæmda sem ekki eru innan gildandi fjárhagsáætlunar. Fram kemur að vegna aukins umfangs verkefna, einkum tilkomu ThorCargo TC og fyrirsjáanlegra aukninna flutninga, hefur skapast nauðsyn á að hraða framkvæmdum og bæta aðstöðu.

Í minnisblaðinu eru lagðar fram eftirfarandi viðbótarbeiðnir:

Gámavöllur fyrir TC - fullbúin aðstaða að stærð um 2,4 ha:
Viðbótarkostnaður: 248 m.kr.

Malbikun geymslusvæðis (1 ha) í stað jarðvegsfrágangs:
Viðbótarkostnaður: 48 m.kr.

Tvímokstur og aukin grjótröðun við landfyllingu og götur:
Viðbótarkostnaður: 55 m.kr.

Framkvæmdir við Flataskersbryggju (undirbúningur og hluti framkvæmdar 2025):
Viðbótarkostnaður: allt að 90 m.kr.

Frágangur svæðis við Meitilinn og gömlu bræðsluna:
Viðbótarkostnaður: 12 m.kr.

Heildarviðaukaþörf: 453 m.kr. (án vsk)

Bæjarráð samþykkir að fela starfsmönnum að vinna viðauka í samræmi við fyrirliggjandi minnisblað, með það að markmiði að styðja við hraða og faglega uppbyggingu hafnarsvæðisins í Þorlákshöfn. Bæjarráð lítur svo á að framkvæmdabeiðnirnar séu forsenda áframhaldandi stórsóknar hafnarinnar.

Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram með hafnarstjóra og fjármála- og stjórnsýslusviði sveitarfélagsins, þar með talið að:

Útbúa viðauka við fjárhagsáætlun 2025.

Leita staðfestingar á styrkhæfni Flataskersbryggju frá Vegagerðinni.

Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:45 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?