| |
| 1. 2207036 - Viljayfirlýsing vegna lóðar | |
Bæjarráð þakkar fyrir framlagða stöðuskýrslu og lýsir ánægju með þann framgang sem orðið hefur í undirbúningi verkefnisins OdinAI.
Bæjarráð samþykkir að framlengja viljayfirlýsingu við North Ventures ehf. um 24 mánuði, til 1. janúar 2028, á óbreyttum meginforsendum. Enn fremur samþykkir bæjarráð að heimila að frátekin lóð verði allt að 130 hektarar með möguleika á stækkun í allt að 400 hektara, með fyrirvara um skipulagsferli og frekari ákvarðanir bæjaryfirvalda.
Bæjarráð leggur áherslu á mikilvægi áframhaldandi vinnu við tryggingu raforkutengingar og annarra lykilinnviða, sem eru forsenda frekari framgangs verkefnisins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita fyrirliggjandi „Statement of Welcome“ fyrir hönd sveitarfélagsins, og halda áfram samstarfi við North Ventures ehf. og viðeigandi hagaðila um framgang verkefnisins.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 2. 2603070 - Beiðni um viðauka | |
| Bæjarráð samþykkir samhljóða beiðni um viðauka. | | |
|
| 3. 2603075 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 | |
Bæjarráð vísar viðaukanum til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 4. 2603019 - Uppgjör fjallskila 2025 | |
| Bæjarráð þakkar upplýsingarnar | | |
|
| 5. 2603074 - Þjónustusamningur um rekstur, þjónustu og ráðgjöf í upplýsingatækni | |
Bæjarráð samþykkir þjónustusamninginn samhljóða.
| | |
|
| 6. 1704002 - Lagafrumvörp Beiðni Alþingis um umsögn. | |
Lagt fram.
| | |
|