| |
| 1. 2311017 - Skýrsla skólastjóra | |
Lögð var fram og kynnt skýrsla skólastjóra um starfsemi skólans undanfarnar vikur.
Nefndin þakkar fyrir ítarlega og upplýsandi kynningu á fjölbreyttu og öflugu starfi skólans, þar sem m.a. kom fram jákvæð niðurstaða starfsmannakönnunar, vinna við endurskoðun skólanámskrár og fjölbreyttir viðburðir nemenda. | | |
|
| 2. 2604039 - Fræðslumál - starfsmannakönnun Skólapúlsins | |
| Nefndin þakkar kynninguna en niðurstöðurnar benda til góðs starfsumhverfis og vellíðan starfsfólks. Það er mikilvægt að viðhalda þeim jákvæðu þáttum sem koma fram í könnuninni. | | |
|
| 3. 2508002 - Skýrsla leikskólastjóra Hraunheima | |
| Skýrsla leikskólastjóra Hraunheima var lögð fram og kynnt. Nefndin þakkar fyrir greinargóða kynningu og lýsir ánægju með fjölbreytt og öflugt starf leikskólans, sem og gott samstarf við foreldra og grunnskóla. | | |
|
| 4. 2604040 - Leikskólinn Hraunheimar - forvarnarverklag | |
| Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þess að sé skýrt verklag í skólastofnunum til að tryggja öryggi og velferð barna og styðja starfsfólk í viðbrögðum við slíkum málum. | | |
|
| 5. 2311012 - Skýrsla leikskólastjóra Bergheima | |
| Skýrsla leikskólastjóra Bergheima var lögð fram og kynnt. Nefndin þakkar fyrir greinargóða kynningu og lýsir ánægju með fjölbreytt starf og gott samstarf við grunnskólann og foreldra. | | |
|
| 6. 2406023 - Útikennslustofa | |
| Nefndin og stjórnendur skólanna lýsa yfir ánægju með uppbyggingu núverandi grillaðstöðu á tjaldsvæðinu sem nýtist sem fjölnota aðstaða og jafnframt sem útikennslusvæði. | | |
|
| 7. 2604032 - Farsæld barna - mælaborð | |
Nefndin þakkar kynninguna.
Stjórnendur og áheyrnafulltrúar fræðslumála yfirgáfu fundinn. | | |
|
| 8. 2312011 - Stefna um málefni eldri borgara | |
Fjölskyldu- og fræðslunefnd hefur farið yfir framlagða stefnu í málefnum eldri borgara og unnið með stefnudrögin. Gerðar voru minniháttar breytingar á einum kafla stefnunnar en að öðru leyti er hún samþykkt samhljóða.
Nefndin telur mikilvægt að fyrir liggi skýr og heildstæð stefna í málaflokknum og vísar stefnunni, með áðurnefndum breytingum, til bæjarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu og samþykktar. | | |
|
| 9. 2604033 - Fræðslumál - umsóknir um stöðu skólastjóra grunnskólans | |
| Nefndin hefur ráðgefandi hlutverk við ráðningu skólastjóra. Nefndin leggur til að einn fulltrúi frá minnihluta og einn frá meirihluta taki þátt í ráðningarferlinu með sviðsstjóra og ráðningaskrifstofunni Hagvangi. | | |
|
| 13. 2604043 - Málefni fatlaðra - Notendaráð | |
Skipan Notendaráðs Ölfuss
Nefndarmenn lögðu fram tillögu að skipan Notendaráðs Ölfuss.
Tillaga að aðalfulltrúum:
Hanna Agla Hörpudóttir Elsa Jóna Stefánsdóttir Pálmi Þór Ásbergsson
Tillaga að varafulltrúum:
Erla Sif Markúsdóttir Grétar Ingi Erlendsson Hrafnhildur Lilja Harðardóttir
Nefndin samþykkir að vísa tillögu um skipan fulltrúa í Notendaráð til staðfestingar í bæjarstjórn.
| | |
|
| |
| 10. 2603046 - Velferðarþjónusta - fundargerð stjórnar Bergrisans | |
| Nefndin þakkar kynninguna. | | |
|
| 11. 2604034 - Velferðarþjónusta - fundargerð stjórnar Arnardrangs | |
| Nefndin þakkar kynninguna. | | |
|
| 12. 2604036 - Velferðarþjónusta - Arnardrangur | |
| Nefndin þakkar kynninguna. | | |
|