Fundargerðir

Til bakaPrenta
Íþrótta- og tómstundanefnd - 52

Haldinn Fundarsalur íþróttamiðstöðvar,
14.04.2026 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Írena Björk Gestsdóttir formaður,
Davíð Arnar Ágústsson varaformaður,
Oskar Rybinski aðalmaður,
Emil Karel Einarsson aðalmaður,
Guðlaug Arna Hannesdóttir aðalmaður,
Ragnar M. Sigurðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi,
Fundargerð ritaði: Ragnar M. Sigurðsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2602023 - Málefni fatlaðra - sumarfrístund fyrir börn
Kynning á fyrirhugaðri dagskrá fyrir fötluð börn í sumar. Kynningabréf var sent til foreldra þar sem kom fram að fyrirhugað er að bjóða uppá Sumarféló fyrir fötluð börn í Ölfusi.

Markmiðið er að bjóða uppá fjölbreytt og skemmtileg verkefni fyrir eldri börn (5.bekkur til 18 ára) næsta sumar. Tilgangurinn er að skapa öruggt, jákvætt og uppbyggilegt umhverfi þar sem hvert barn fær tækifæri til að blómstra, efla hæfni sína og njóta samveru með öðrum.

Lagt fram til kynningar.
Kynnt var fyrirhuguð dagskrá fyrir fötluð börn í sumar. Markmiðið er að bjóða upp á fjölbreytt og skemmtileg verkefni fyrir börn á aldrinum 10?18 ára næsta sumar. Tilgangurinn er að skapa öruggt, jákvætt og uppbyggilegt umhverfi þar sem hvert barn fær tækifæri til að blómstra, efla færni sína og njóta samveru með öðrum.
2. 2602029 - Barnamenningarhátíð á Suðurlandi
Við í Ölfusi í samstarfi við SASS, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, erum að taka þátt í barnamenningarhátíð á Suðurlandi sem er fyrirhuguð dagana 20. til 26. apríl.

Drög að dagskrá í Ölfusi er tilbúin en horft er til þess að skólarnir, bókasafnið og íþróttamiðstöðin verði með viðburði með börnum og fyrir börn með áherslu á fjölmenningu.

Dagskráin er unnin af sviðsstjóra í samvinnu við forstöðumann bókasafnsins.

Lagt fram til kynningar.
Sveitarfélagið Ölfus, í samstarfi við SASS, tekur þátt í Barnamenningarhátíð á Suðurlandi sem fyrirhuguð er dagana 20.?26. apríl.
4. 2604025 - Umsóknir í afreks- og styrktarsjóð Ölfuss 2026
Umsóknir í afreks- og styrktarsjóð
Írena Björk Gestsdóttir vék af fundi undir tveimur liðum og Davíð Arnar Ágústsson vék af fundi undir einum lið.
Alls bárust átta umsóknir. Einni umsókn var hafnað og hlutu því sjö umsóknir styrk að þessu sinni.
- Jakob Hrafn Þórisson hlýtur kr. 150.000 vegna keppnisferðar með U15 landsliði Íslands í körfuknattleik til Finnlands.
- Jóhanna Ýr Ágústsdóttir hlýtur kr. 150.000 vegna keppnisferðar með U20 landsliði Íslands í körfuknattleik til Litháen.
- Valgerður Einarsdóttir Hjaltested hlýtur kr. 300.000 vegna keppnisferða með landsliði Íslands í bogfimi, m.a. á heimsmeistaramót og Evrópumeistaramót.
- Fjórði flokkur Knattspyrnufélagsins Ægis hlýtur kr. 180.000 vegna æfinga og keppnisferðar til Spánar dagana 7.12. september nk. Alls er um níu iðkendur að ræða.
- Ungmennafélagið Þór og Knattspyrnufélagið Ægir fá kr. 150.000 í styrk vegna skyndihjálparnámskeiðs fyrir þjálfara. Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa með börnum og verður m.a. farið yfir bráðaofnæmi, flog, áverka, beinbrot, endurlífgun og aðskotahluti í öndunarvegi.
- Anna Laufey Gestsdóttir hlýtur kr. 50.000 vegna æfinga og keppnisferða með meistaraflokki kvenna hjá Umf. Selfossi.
- Olga Lind Gestsdóttir hlýtur kr. 50.000 vegna æfinga og keppnisferða með meistaraflokki kvenna hjá Umf. Selfossi.

6. 2603032 - Barna- og unglingaþing Ölfuss 2026 - skýrsla
Lagt fram til kynningar.
Lögð var fram skýrsla með helstu niðurstöðum barnaþings sem haldið var 11. febrúar sl. Börn úr grunnskóla og báðum leikskólum tóku þátt. Á þinginu voru rædd málefni sem snúa að daglegu lífi barnanna. Með slíkum viðburðum er tryggt að raddir barna heyrist, í anda Barnasáttmálans
Almenn mál - umsagnir og vísanir
5. 2403014 - Fjölnota Íþróttahús
Lagt fram til kynningar.
Lögð var fram fundargerð starfshóps um fjölnota íþróttahús frá 9. apríl sl. Í fundargerðinni er farið yfir niðurstöður um gerð hússins, sem og vangaveltur um staðsetningu og fleira.
Gestur fundarins var Gestur Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar og formaður starfshópsins. Hann fór yfir forsendur sem starfshópurinn hefur lagt til varðandi byggingu fjölnota íþróttahúss, bæði hvað varðar efnisval og mögulega staðsetningu.
Samkvæmt fundargerðinni verða næstu skref að leggja niðurstöðurnar fyrir framkvæmda- og hafnarnefnd sem og íþrótta- og tómstundanefnd til umfjöllunar.
Nefndin fagnar því að skriður sé kominn á verkefnið og lýsir yfir ánægju með þær hugmyndir sem kynntar voru. Nefndin telur jafnframt brýnt að skipulags- og umhverfisnefnd taki verkefnið til umfjöllunar og fari yfir skipulagsþætti, þannig að þeir verði ekki til hindrunar síðar í ferlinu.
Mál til kynningar
3. 2604001 - Frístundastyrkur - skýrsla 2025
Hér er lögð fram samantekt á nýtingu frístundastyrkja árið 2025, sem er tíunda árið frá innleiðingu þeirra. Markmið styrkjanna er að tryggja jafnt aðgengi barna og unglinga að frístundastarfi og styðja við foreldra vegna kostnaðar.

Á árinu nýttu um 70% barna rétt sinn til styrksins, sem gefur mikilvægar vísbendingar um þátttöku og tækifæri til úrbóta, sérstaklega hjá ákveðnum aldurshópum.

Lagt fram til kynningar.
Upphæð frístundastyrks árið 2025 var kr. 54.200 og samkvæmt fjárhagsáætlun þessa árs hækkar hann í kr. 56.300. Nýting styrksins er 70% og fer hækkandi milli ára. Styrkurinn gildir fyrir börn á aldrinum 0-18 ára.
Sé rýnt í tölurnar kemur í ljós að nýting meðal barna á grunnskólaaldri er um 80%, sem telst gott. Nýting hjá börnum á aldrinum 0-5 ára er um 65% og fer hækkandi. Í elsta aldurshópnum, 16-18 ára, er nýtingin um 40% og er þar tækifæri til úrbóta.
Mikilvægt er að ná til fleiri ungmenna á þessum aldri til að taka þátt í skipulögðu frístundastarfi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?