Fullveldisdagurinn

Á þessu ári eru 100 ár síðan að Ísland öðlaðist fullveldi. Þann 1. desember 1918 átti sér stað mjög merkur viðburður í sögu lands og þjóðar þegar Ísland varð frjálst og fullvalda ríki í konungssambandi við Danmörku. Þá tók gildi sambandslagasáttmáli ríkjanna tveggja en í honum fólst að Danmörk sá um utanríkismál og landhelgisgæslu fyrir Ísland, svo lengi sem Íslendingar ekki tækju við því sjálfir. Að öðru leyti fengu Íslendingar full yfirráð eigin mála í sínar hendur frá og með þessum degi. Þennan dag var íslenski fáninn dreginn að húni í fyrsta skipti sem fullgildur þjóðfáni.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?