Sláðu í gegn - keppni í varavæli ("lip sync")

Sláðu í gegn í Versölum á Sumardaginn fyrsta, þá fer fram stórskemmtileg keppni í varavæli („lip sync“) og sviðsframkomu, þar sem þú færð að verða poppstjarna í smá stund. Þetta er alls ekki söngkeppni, þú þarft bara að velja þitt uppáhaldslag, klæða þig upp og túlka það á þinn eigin, frábæra hátt.

Dómnefndin horfir á leikgleði, búninga, sviðsframkomu og frumlega túlkun svo það er um að gera að sleppa sköpunargleðinni lausri!

Skráning og frekari upplýsingar fást á Bæjarbókasafni Ölfuss eða með því að senda póst á bokasafn@olfus.is.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?