Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarráð Ölfuss - 465

Haldinn í fjarfundi,
07.05.2026 og hófst hann kl. 12:15
Fundinn sátu: Grétar Ingi Erlendsson formaður,
Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir aðalmaður,
Hrönn Guðmundsdóttir aðalmaður,
Berglind Friðriksdóttir áheyrnarfulltrúi,
Elliði Vignisson bæjarstjóri,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sandra Dís Hafþórsdóttir, sviðsstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2511011 - Fornleifarannsóknir við Egilsbraut - Aukafjárveiting
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun vegna fornleifarannsókna í kringum H3 svæði. Minjastofnun gerði kröfu um auknar rannsóknir á svæðinu áður en heimilt væri að hefja framkvæmdir. Nauðsynlegt er að ljúka rannsóknunum áður en mögulegt verður að úthluta lóðunum: Egilsbraut 7 (hjúkrunarheimili) og athafnalóðum við Nesbraut.

Lagt er fram tilboð frá fornleifafræðingi upp á 8.130.000 kr.

Samþykkt samhljóða.
2. 2605003 - Þríhliða samkomulag - lóð fyrir verslun
Lögð eru fram drög að þríhliða samkomulagi milli Sveitarfélagsins Ölfuss, Haga hf. og Thule Properties ehf. varðandi lóðarréttindi á Rásamóa 2 þar sem til stendur að reisa dagvöruverslun. Samkomulagið felur einnig í sér úthlutun lóðar undir eldsneytisstöð á Öldubakka 3 eða Sandbakka 2.

Bæjarráð Ölfuss fagnar fyrirliggjandi drögum að samkomulagi við Haga hf. um uppbyggingu nýrrar þjónustu í Þorlákshöfn. Fyrirhuguð opnun Bónus matvöruverslunar og Olís sjálfsafgreiðslustöðvar er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins og til marks um aukið aðdráttarafl Ölfuss fyrir öfluga þjónustu- og atvinnustarfsemi.

Bæjarráð telur að uppbyggingin muni bæta verulega þjónustu við íbúa sveitarfélagsins og styðja við ört vaxandi atvinnulíf á svæðinu.

Bæjarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að samkomulagi og felur bæjarstjóra að undirrita samkomulagið fyrir hönd sveitarfélagsins.
3. 2605004 - Ósk um stöðuyfirlit skipulagsmála vegna samkomulags um þróun hjúkrunarheimilis í Þorlákshöfn
Lagt fram erindi frá Íslenskum fasteignum ehf., dags. 7. maí 2026, þar sem félagið ítrekar eindreginn vilja til að byggja hjúkrunarheimili í Þorlákshöfn og óskar eftir stöðuyfirliti vegna skipulagsmála sem tengjast fyrirhuguðu hjúkrunarheimili við Egilsbraut í Þorlákshöfn, á grundvelli samkomulags aðila frá 24. júní 2025 um þróun og uppbyggingu hjúkrunarheimilis og tengdrar þjónustu á svæðinu.

Í erindinu er óskað eftir upplýsingum um stöðu deiliskipulagsvinnu og næstu skref, áætlaðan tímaramma fyrir afgreiðslu skipulags og hvort forsendur verkefnisins hafi breyst frá því sem lagt var upp með í samkomulaginu. Þá er lögð áhersla á mikilvægi hraðrar framvindu verkefnisins í ljósi samfélagslegrar þarfar fyrir fjölgun hjúkrunarrýma.

Bæjarráð Ölfuss hefur farið yfir erindi Íslenskra fasteigna ehf., dags. 7. maí 2026, þar sem óskað er eftir stöðuyfirliti vegna skipulagsmála sem tengjast fyrirhuguðu hjúkrunarheimili við Egilsbraut í Þorlákshöfn.

Bæjarráð staðfestir að vinna við skipulagsmál verkefnisins hafi að mestu leyti gengið samkvæmt áætlun, en tafir hafi orðið á endanlegri afgreiðslu vegna athugasemda Skipulagsstofnunar sem lúta að málsmeðferð gagnvart Minjastofnun Íslands og mögulegum fornminjum innan skipulagssvæðisins. Unnið er að þeim mótvægisaðgerðum sem Minjastofnun hefur lagt til og er stefnt að því að þeirri vinnu ljúki innan maímánaðar 2026.

Bæjarráð ítrekar að grundvallarforsendur samkomulags aðila frá 24. júní 2025 standi óbreyttar af hálfu sveitarfélagsins og að áfram sé skýr vilji til samstarfs um uppbyggingu hjúkrunarheimilis í sveitarfélaginu. Jafnframt er bent á að fyrirsjáanlegt sé að lóðarvilyrði geti ekki legið fyrir innan þess tímaramma sem upphaflega var áætlaður vegna framangreindra atriða.

Bæjarráð leggur áherslu á áframhaldandi gott samstarf við Íslenskar fasteignir ehf. og felur bæjarstjóra að halda félaginu upplýstu um framvindu mála og eiga áfram virkt samtal um næstu skref verkefnisins.

Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:30 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?