Sumarstarf fyrir fötluð börn
Markmiðið er að bjóða uppá fjölbreytt og skemmtileg verkefni fyrir eldri börn (11 til 18 ára).
Tilgangurinn er að skapa öruggt, jákvætt og uppbyggilegt umhverfi þar sem hvert barn fær tækifæri til að blómstra, efla hæfni sína og njóta samveru með öðrum.
Vinnuskólatengd sumarverkefni sem tengjast vinnuskólanum, þar sem börnin fá að:
- taka þátt í fjölbreyttum verkefnum í nærumhverfinu,
- prófa létt störf við hæfi,
- efla sjálfstæði, ábyrgð og félagsfærni.
Lögð er áhersla á að verkefnin séu aðlöguð hverju barni og að þátttaka sé bæði hvetjandi og skemmtileg.
Fjölbreytt námskeið
Boðið verður upp á fjölbreytt námskeið og dagskrá sem höfðar að ólíkum áhugamálum barna. Í boði verða léttar íþróttaæfingar og hreyfileikir auk námskeiða í listgreinum þar sem börnin fá tækifæri til að prófa sig áfram í tónlist, myndlist, handverki og skapandi verkefnum. Einnig verður boðið upp á starfstengda fræðslu, meðal annars með heimsóknum á vinnustaði, verkefnum þar sem börnin fá að kynnast mismunandi störfum og fræðslu um daglega starfsemi í samfélaginu. Markmiðið með þessu fjölbreytta úrvali er að gefa börnunum tækifæri til að kynnast nýjum áhugamálum, prófa ólíkar leiðir til að tjá sig og vinna með hæfileika sína á eigin forsendum.
Við viljum gjarnan heyra frá ykkur!
Foreldrar og forráðafólk geti lagt sitt af mörkum í hugmyndavinnunni og komið með tillögur að verkefnum.
Skráning verður auglýst um miðjan maí.
Verkefnastjóri í sumarið 2026 var Hanna Tara Björnsdóttir