Fundargerðir

Til bakaPrenta
Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 92

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
08.06.2026 og hófst hann kl. 15:00
Fundinn sátu: Sigmar Björgvin Árnason sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sigmar Árnason, Skipulags og byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2605056 - Umsókn um lóð - Kríuvík 10
Sóldís Dröfn Kristinsdóttir sækir um lóðina Kríuvík 10 og Kríuvík 12 til vara.
Afgreiðsla: Synjað. Lóðin er ekki laus til úthlutunar.
2. 2605055 - Umsókn um lóð - Kríuvík 12
Dagur Skúlason sækir um lóðina Kríuvík 12 og Kríuvík 14 til vara.
Afgreiðsla: Samþykkt.
3. 2605057 - Umsókn um lóð - Arnarvík 20
Jón Orri Edwald Magnússon sækir um lóðina Arnarvík 20 og Arnarvík 22 til vara.
Afgreiðsla: Samþykkt.
4. 2606011 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Klettar - Flokkur 2
Hugrún Þorsteinsdóttir f/h lóðarhafa Klettar ferðaþjónusta ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir 4 frístundahús og 1 þjónustuhús skv. teikningu frá M11 arkitektar, dags. 20/05/2026.
Afgreiðsla: Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 m/síðari breytingum. Byggingarleyfi og heimild til að hefja framkvæmdir verður gefið út þegar skilyrði 2.4.4 gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
5. 2606012 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Norðurbakki 1 - Flokkur 1
Guðmundur Oddur Víðisson f/h lóðarhafa TC Holding ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingar á ytra byrði hússins og lóðarinnar skv. lýsingu og engar breytingar eru á stærðum mannvirkis skv. teikningu frá Dap, dags. 24/04/2026.
Afgreiðsla: Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 m/síðari breytingum. Byggingarleyfi og heimild til að hefja framkvæmdir verður gefið út þegar skilyrði 2.4.4 gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
6. 2606013 - Kolviðarhóll lóð 1 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
ON Power ohf. sækir um byggingarleyfi fyrir lítilsháttar breytingar á burðarvirki skv. verklýsingu, dags. 21/05/2026.
Afgreiðsla: Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 m/síðari breytingum. Byggingarleyfi og heimild til að hefja framkvæmdir verður gefið út þegar skilyrði 2.4.4 gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
7. 2606014 - Umsókn um stöðuleyfi - Bárugata 15 (L235921)
Silfurafl ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir gám á lóðinni Bárugata 15. Óskað að stöðuleyfi hefjist 07.06.2026.
Afgreiðsla: Stöðuleyfi samþykkt til eins árs frá 07.06.2026 til 07.06.2027.
8. 2606015 - Umsókn um stöðuleyfi - Gyðugata 6-8 (L235936)
Silfurafl ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir gám á lóðinni Gyðugata 6-8. Óskað að stöðuleyfi hefjist 07.06.2026.
Afgreiðsla: Stöðuleyfi samþykkt til eins árs frá 07.06.2026 til 07.06.2027.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:15 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?