Frisbígolf námskeið - ókeypis fyrir alla

Um námskeiðið: Farið verður yfir allt það helsta sem tengist frisbígolfi, hvernig haldið er á frisbígolfdiskum, hvernig skal kasta og almennar reglur í kringum sportið.
Diskar verða til sölu á staðnum fyrir þá sem ekki eiga.

Dagsetning: Sunnud. 15. júni kl. 13:00 til 15:00 á Frisbígolfvelli Þorlákshafnar (bakvið frálsíþróttavöllinn)

Kennarar: Árni Sigurjónsson. Þrefaldur Islandsmeistari 40+, frisbígolfkennari í yfir 7 ár og Bjarni Þór Bjarnason. Einn kastlengsti frisbígolfspilari landsins, hefur spilað frá 11 ára aldri og veitt leiðsögn og kennslu í frisbigolfi í yfir 5 ár.

Skráning á sundlaug@olfus.is 

Þetta er fyrir alla aldurshópa og kostar ekkert.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?