Jarðvarmahlaup ON fer fram í hjarta Hengilsins
Jarðvarmahlaup Orku náttúrunnar verður haldið fimmtudaginn 10. júlí kl. 19:30 í stórbrotnu landslagi Hengilsins, þar sem ræst verður við Hellisheiðarvirkjun. Hlaupið liggur upp á Hengilssvæðið, þar sem jarðhitinn er allsráðandi, og endar aftur við virkjunina. Þetta frábæra hlaup sameinar útivist, náttúruupplifun og skemmtilega stemningu í umhverfi sem erfitt er að toppa.
Náttúruleið með spennandi landslagi
Hlaupaleiðin er um 13 km og með flögutímatöku, þannig að allir þátttakendur fá skráðan persónulegan tíma. Hlaupið hefst á malbiki og liggur leiðin inn í Sleggjubeinsdal, þar sem stikur leiða hlaupara upp Sleggjubeinsskarð. Þegar upp er komið er hlaupið eftir grösugum stígum og jeppaslóðum, og stiklað yfir læki á köflum, meðfram Skarðsmýrarfjalli í ævintýralegu umhverfi jarðhitans. Komið er að drykkjarstöðvið skálann Hreysi áður en síðustu kílómetrarnir eru farnir niður í átt að virkjuninni. Þar tekur á móti hlaupurum mikilfenglegt útsýni og gleði í markinu.
Ókeypis þátttaka og takmarkaður sætafjöldi
Þátttaka í hlaupinu er öllum opin og er að auki ókeypis, en fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 500 manns. Forskráning fer fram á netskraning.is og einnig verður hægt að skrá sig á staðnum á meðan pláss leyfir.
Aðstaða og aðgengi
Hlaupið hefst og endar við Hellisheiðarvirkjun þar sem góð bílastæði eru fyrir hendi, en við hvetjum fólk eindregið til að sameinast í bíla. Þar verður einnig til staðar hressing og stuð að hlaupi loknu.
Orkan í náttúrunni
Hengilssvæðið er kjörinn vettvangur fyrir svona hlaup. Svæðið er ein helsta útivistarperla landsins, með yfir 110 km af merktum gönguleiðum, og þar stunda tugþúsundir manna útivist ár hvert. ON rekur þar jarðvarmavirkjanir sínar, á Nesjavöllum og á Hellisheiði en ON er stærsta jarðvarmafyrirtæki landsins. Fyrirtækið framleiðir rafmagn og heitt vatn með jarðvarma og vatnsafli og hefur hlotið Íslensku ánægjuvogina sex ár í röð fyrir framúrskarandi þjónustu. Sjálfbærni, nýsköpun og ábyrg nýting auðlinda eru leiðarljós í allri starfsemi ON - Jarðvarmahlaupið er því alveg í anda ON, þar sem orkan í náttúrunnier augljós.
Stemning á virkum degi – taktu þátt!
Jarðvarmahlaup ON er skemmtilegt, sérstakt og aðeins öðruvísi. Það er haldið að kvöldi til á virkum degi og við lofum ekki aðeins krefjandi leið í fallegri náttúru heldur líka skemmtilegri stemningu, bæði í upphafi og í markinu. Hvort sem þú ert vanur hlaupari eða bara að leita að góðri ástæðu til að hreyfa þig í fallegu umhverfi, þá er Jarðvarmahlaupið upplagður viðburður fyrir þig.