Jól í Ölfusi

Jól í Ölfusi - aðventustemning og samvera

Aðventan og jólahátíð í Ölfusi er tími ljósa, skreytinga og samveru fyrir alla sem þar búa og heimsækja sveitarfélagið.

Íbúar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir leggja sitt af mörkum til að skapa hlýlega og hátíðlega stemningu um allt sveitarfélagið. Jólaljós prýða götur og heimili og fjölbreyttir viðburðir á aðventunni bjóða fólki á öllum aldri að njóta menningar og hefða.

Á hverju ári er gefið út aðventudagatal Ölfuss en þar má finna fjölmarga viðburði, sýningar og uppákomur sem endurspegla þann kraft og samhug sem einkennir samfélagið á þessum árstíma. Markmiðið er að skapa tækifæri fyrir íbúa og gesti til að koma saman, njóta menningar, afþreyingar og góðra stunda með fjölskyldu og vinum.

   

Jólaskreytingakeppni er á meðal íbúa.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?