Sjómannadagshelgin

Sjómannadagshelgi með sjóræningjastemningu í Þorlákshöfn

Það er fjölskyldufjör og hátíðarstemning í Þorlákshöfn um sjómannadagshelgina ár hvert.

Fjölbreytt afþreying er í boði fyrir alla aldurshópa: fjölskylduskemmtun á Herjólfsbryggju, sjóræningjafjör í íþróttahúsinu, hopp í sjóinn og margt fleira.

Á sjálfan sjómannadaginn er sjómannadagsmessa í Þorlákskirkju og glæsilegt kaffihlaðborð í Versölum þar sem bæjarbúar og gestir geta komið saman og notið samverunnar.

Sundlaugin í Þorlákshöfn er opin alla helgina fyrir þá sem vilja slaka á eða skella sér í sund á milli viðburða.

Allir eru hvattir til að leggja leið sína til Þorlákshafnar og njóta skemmtilegrar sjómannadagshelgar.

Það er alltaf fjör að stökkva í sjóinn en fyllsta öryggis er gætt í samvinnu við Björgunarsveitina Mannbjörgu.
Ljósmynd: Sigmar Örn Sigþórsson fyrir Hamingjuhöfn

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?