Þjóðhátíðardagurinn er haldinn hátíðlegur í Þorlákshöfn
Ölfusingar og gestir koma saman í hátíðlegri stemningu á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Hefðbundin dagskrá hefst með skrúðgöngu þar sem Lúðrasveit Þorlákshafnar fer fyrir göngunni, áður en hátíðardagskrá tekur við í Skrúðgarðinum með ávörpum, hátíðarræðu og flutningi fjallkonunnar.
Umf. Þór sér um að skipuleggja dagskrána ár hvert í samvinnu við sveitarfélagið og kvenfélagið.
Að lokinni formlegri dagskrá er boðið uppá fjölbreytta skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Hátíðin einkenndist af góðri þátttöku, gleði og samveru þar sem samfélagið kemur saman til að fagna sjálfstæði Íslands.
Þjóðhátíðardagurinn í Þorlákshöfn er fastur liður í menningar- og samfélagslífi bæjarins og sýnir dagurinn kraft og samhug íbúa og gesta.
