Gunnar Helgason heimsækir Bæjarbókasafn Ölfuss

Næstkomandi fimmtudag fáum við góðan gest á bókasafnið, rithöfundinn Gunnar Helgason sem ætlar að lesa upp úr nýjustu bók sinni og spjalla við gesti safnsins.

Gunnar er öllum landsmönnum að góðu kunnur sem leikari, leikstjóri og rithöfundur. Gunnar hefur hlotið Bókaverðlaun barnanna fjórum sinnum en það eru lesendurnir sjálfir sem velja verðlaunahafann ár hvert. Árið 2016 fékk hann Hin Íslensku bókmenntaverðlaun fyrir Mömmu klikk!

Það eru allir velkomnir á Bæjarbókasafnið kl. 11 fimmtudaginn 16. ágúst.

Lestur er bestur!

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?