Barnavernd Ölfuss

Tilkynning til barnaverndar

Í Barnavernd er markmiðið að tryggja börnum sem búa við óviðunandi aðstæður eða stofna heilsu sinni og þroska í hættu, nauðsynlega aðstoð. Leitast skal við að ná markmiðum með því að styrkja fjölskyldur í uppeldishlutverki sínu og beita úrræðum til verndar einstökum börnum þegar það á við.

 

 

Allir hafa tilkynningarskyldu samkvæmt barnaverndarlögum og hún skiptir miklu máli fyrir velferð barna. Óska má eftir því að tilkynning sé undir nafnleynd gagnvart þeim sem verið er að tilkynna.

Mikilvægt er að tilkynna til barnaverndar ef áhyggjur eru af aðstæðum barns. Tilkynna þarf um bágan aðbúnað barns, óviðeigandi uppeldisaðstæður og um áhættuhegðun. Einnig er mikilvægt að tilkynna ef áhyggjur eru af lífi ófædds barns sé stofnað í hættu með líferni barnshafandi konu.

  • Þú mátt skila á þínu móðurmáli, ef þú vilt.
  • You may write in your mother´s tongue, if you prefer.
  • Możesz napisać w swoim ojczystym języku, jeśli chcesz.

Einnig er hægt er að senda tilkynningu til barnaverndar á netfangið barnavernd@olfus.is  eða hringja í síma 480-3800 á opnunartíma bæjarskrifstofu. Utan opnunartíma, á kvöldin og um helgar, er hægt að fá samband við bakvakt barnaverndar í gegnum Neyðarlínuna 112.

Líta þarf á tilkynningu til barnaverndar sem beiðni um stuðning og aðstoð fyrir barnið og fjölskyldu þess. Starfsfólk barnaverndar leggur áherslu á samstarf við börn og foreldra við vinnslu mála. Nærgætni og virðingar er gætt í samskiptum við alla. Fyllsta trúnaðar er heitið.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?