Óskalögin þeirra #1

Fimmtudagskvöldið 9.ágúst munu leik og söngkonan Anna Margrét Káradóttir og gítarleikarinn Rúnar Gunnarsson halda tónleika í Hendur í höfn. 

Tónleikarnir bera heitið Óskalögin þeirra #1 og eru hluti af tónleikaröð. Anna Margrét hefur nú þegar safnað saman óskalögum vina og vandamanna og mun flytja þau við undirleik Rúnars. Lagavalið er fjölbreytt þar sem viðmælandahópurinn var á öllum aldri! 

Er ekki tilvalið að hita upp fyrir Hafnardaga í góðum félagsskap, í notalegu umhverfi og jafnvel gæða sér á dýrindis veitingum undir ljúfum tónum? 

Uppselt er á tónleikana.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?